Vel heppnað Norðurlandaþing í
Svíþjóð - Næsta þing í Eistlandi

(Maí '07)
Norðurlandaþing íþróttafréttamanna fór fram í Ronneby í Svíþjóð 3. til 6. maí
síðastliðinn.Þingið tókst í alla staði mjög vel og var Svíum til sóma. Stjórn
samtaka SÍ fór á þingið, þ.e. Þorsteinn, Guðmundur og Jón Kristján en Hrafnkell
forfallaðist á síðustu stundu af óviðráðanlegum orsökum. Ákveðið var að næsta
þing fari fram í Eistlandi eftir tvö ár en Eistar hafa verið þátttakendur á
Norðurlandaþinginu síðan 1997.
Eftir nokkrar hremmingar að komast til Ronneby þar sem ferðalangarnir þurftu að
ganga síðustu kílómetrana á Brunnhótelið og kom um miðja nótt, hófst þingið á
fimmtudeginum.
Karin Mattsson, forseti Sænsku íþróttahreyfingarinnar (sænsku ÍSÍ) hélt þar fróðlegt erindi um uppbyggingu og starfsemi íþróttahreyfingarinnar. Meðlimir íþróttahreyfingarinnar eru 3 milljónir, þar af 2 milljónir sem eru skráðir iðkendur. Talið er að þeir sem eru sjálfboðaliðar í stjórnunarstöðum séu um 600.000, afreksíþróttafólk í Svíþjóð er um 7000 en sérsamböndin eru 65. Íþróttir heyra undir menntamálaráðuneytið sem setur um 16 milljarða íslenskra króna í íþróttahreyfinguna árlega.
Eftir hádegi mættu Lars Åke Lagrell, formaður sænska knattspyrnusambandsins
ásamt Sune Hellströmer framkvæmdastjóra og Jonas Nystedt upplýsingafulltrúa.
Lagrell hefur verið formaður sænska sambandsins síðan 1992, hvorki meira né
minna. Þremenningarnir fóru yfir víðan völl. Það sem vakti mesta athygli er
bygging á nýjum knattspyrnuleikvöngum í Svíþjóð. Meðal annars er verið að
undirbúa nýjan þjóðarleikvang í Stokkhólmi í stað Råsunda sem var byggður fyrst
1910 og stækkaður 1937. Stofnað hefur verið hlutafélag um nýja leikvanginn að
því standa ríkið, borgin, Sænska knattspyrnusambandið og einkaaðilar.
Leikvangurinn mun taka 50.000 manns í sæti, kostnaðaráætlun hljóðar upp á 20
milljarða ísl. kr. og er áætlað að hann verði vígður 2011. Nýi leikvangurinn er
skammt frá Råsunda.
Fram kom í máli formannsins að þar sem Svíþjóð hefur komist í úrslit síðustu
fjögurra stórmóta hefur það skapað sambandinu fjárhagslegt svigrúm til að lyfta
fótboltanum heimafyrir á hærri stall. Mikið átak var gert í því að fá fleiri
áhorfendur á völlinn og hefur það skilað sér. Meðal áhorfendafjöldi árið 1992
var 4194 en hefur ríflega tvöfaldast, í fyrra var meðalaðsóknin 9423 á leik.
Hjá stelpunum var meðalsókn 1992 á leik 164 áhorfendur en 814 árið 2006.
Næsta stórverkefni Svía er að halda Evrópumót U21 árs landsliða 2009. Reiknað er
með um 200.000 áhorfendum og að sjónvarpsáhorfendur í Evrópu verði um 65
milljónir. Fram kom að Svíþjóð og Noregur eru að íhuga að senda inn sameiginlega
umsókn um að halda EM karla 2016. Deginum lauk svo í Orrefors þar sem við fengum
að skoða glerverksmiðjuna frægu (Kosta Boda). Þar var boðið í kvöldmat og til
þess að rífa upp stemmninguna tók undirritaður upp gítarinn og tók lagið með
þingfulltrúum (Det var brænnevin í flasken ..... o.fl. góð).
Á föstudeginum komu gestir frá sænsku Ólympíunefndinni og var fróðlegt að heyra
þá segja frá ótrúlega markvissri uppbyggingu á afreksfólki í sínum röðum. Það er
engin tilviljun að Svíar eiga afreksfólk í frjálsum íþróttum í fremst röð í
heiminum í dag. Stefan Lindeberg, formaður sænsku Ólympíunefndarinnar sagðist
vera umdeildur maður en árangurinn talaði sínu máli.
Fulltrúar frá ATG komu næstir en þeir stýra hestaveðreiðunum í Svíþjóð. Veltan á
þeim markaði er um 30 milljarðar ísl. króna á ári sem sýnir að Svíar eru
duglegir að veðja á hesta. Um kvöldið fórum við svo á veðreiðar í Kalmar í boði
ATG og veðjuðum á nokkrar bykkjur, en án árangurs. Hins vegar var gaman að
fylgjast með þessum veðreiðaheimi, hann er afar sérstakur.
Á laugardeginum fór svo fram Norðurlandaþingi sjálft. Þar voru ýmis mál rædd,
sérstaklega þau sem tengjast AIPS. Strangt til tekið eiga Norðmenn að halda
næsta þing 2009 en Eistar, sem hafa setið þingið frá 1997, buðu að halda næsta
þing og var það samþykkt með lófaklappi.
Síðdegis komu gestir frá Sænskum getraunum, sem eru í eigu sænska ríkisins. Það
voru þeir Andreas Jansson og Jacob Lagercrantz. Erindi þeir var einkar áhugavert
en þeir fóru yfir sænska spilamarkaðinn. Samkvæmt rannsóknum þeirra fara 1,3% af
tekjum fólks í tippa eða í lottó. 46% af tekjun Svenska spel fara aftur til
tipparanna. Velta Sænsku getraunanna 2006 voru 200 milljarðar, takk fyrir. Fram
kom að Sænskar getraunir styrkja íþróttafréttamann á hverju ári til þess að fara
út fyrir landsteinana og kafa dýpra ofan í mál, styrkurinn á síðasta ári (2006)
fór til íþróttafréttamanns sem ætlar að fara til Íslands að rannsaka hvers vegna
litla Ísland framleiðir svo marga góða knattspyrnumenn líkt og raun ber vitni.
Útrás íslenskra knattspyrnumanna er því farin að vekja töluverða athygli.
Síðdegis var svo landskeppni í keilu þar sem íslenska sveitin var hársbreidd frá
því að komast á verðlaunapall. Sérstaka athygli vöktu ,,afturábakssnúningar"
Guðmundar Hilmarssonar, annað eins hefur ekki sést á keilubrautum.
Um kvöldið var svo sameiginlegur kvöldverður þar sem skipst var á kveðjum og
gjöfum og formenn héldu ræður. Undirritaður flutti lengstu (og örugglega
skemmtilegustu) ræðu kvöldsins og höfðu Finnarnir á orði að ,,ef Íslendingar
hætta að koma á Norðurlandaþingið, þá hættum við líka að koma". Það er hins
vegar ekki á dagskrá að hætta að mæta, þessi þing eru sannarlega krydd í
tilveruna. Þinginu lauk svo á dansleik á hótelinu þar sem Jón Kristján kom
sterkur inn á dansgólfinu. Á sunnudeginum var haldið heim á leið en á
Reykjanesbrautinni gerðust þau undir og stórmerki að leigubíll sem Guðmundur og
Jón Kristján tóku, reyndist ekki burðugri en svo en það hvellsprakk á honum,
ekki einu sinni - heldur tvisvar! Annars var þingið Svíunum til mikil sóma
Þorsteinn Gunnars


Til vinstri: Lars-Åke Lagrell form. sænska knattspyrnusambandsins var gestur á þinginu.
Til hægri: Danskir reynsluboltar og sænskir nýgræðingar.

Fulltrúar Íslands; Þorsteinn, Guðmundur og Jón Kristján.


ÍTil vinstri: Íslenska formanninum fannst vanta stuð í mannskapinn og greip þá gítarinn og tók létt lög í Dalnum!
TIl hægri: Kvöldmaturinn hjá Kosta Boda í ,,Glasriket" var snilld.


Til vinstri: Í skoðunarferð um sænskar veðreiðar. Gjaldkeri SÍ er hestaáhugamaður í laumi!
Til hægri: Það gafst einstaka sinnum tími til að skála!

Kvenlegur
stíll Til vinstri: Kvenlegur
stíll Guðmundar í keilumótinu vakti mikla athygli!
Til hægri: Finnska sendinefndin var hress að vanda.


Til vinstri: Fulltrúar Eistlands; hjónin Virgi og Sven Sommers.
Til hægri: Norska sendinefndin afslöppuð og fín.


Til vinstri: Helmingurinn af dönsku nefndinni.
Til hægri: Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna í Svíþjóð sem hafði veg og vanda að þinginu.