Viðburðarríkt þing hjá AIPS
(Maí '07)
AIPS, Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, héltu sitt árlega þing að þessu
sinni í Bregenz í Austurríki en á næsta ári fer fram EM í knattspyrnu í
Austurríki og Sviss. Formaður, SÍ, Þorsteinn Gunnarsson, sótti þingið. Til
Bregenz komu fulltrúar frá 107 löndum en þetta var afmælisþing, það sjötugasta í
röðinni og því var það veglegra en oft áður og aðsóknin aldrei verið betri.

Ýmis hagsmunamál íþróttafréttamanna um allan heim báru á góma að vanda en segja
má að þingið hafi verið nokkuð sögulegt að þessu sinni. Framkvæmdastjóri AIPS,
ákvað að segja af sér fyrir þingið til þess að axla ábyrgð á fjármálaóreiðu
innan AIPS á valdatíð fyrrverandi forseta. Á þinginu sjálfu dró hann uppsögnina
til baka og þá varð uppi fótur og fit og framkvæmdastjórnin hótað að segja af
sér í heilu lagi. Það fór svo að framkvæmdastjórinn sagði upp störfum öðru
sinni.
Álfurnar funda einnig á þinginu. UEPS (Evrópusamtök íþróttafréttamanna) héldu
einnig sinn aðalfund. UEPS stendur fyrir sumarskóla og gaf út veglegt afmælisrit
í tilefni af 30 ára afmæli sambandsins í ár (þar sem Ísland á m.a. grein). UEPS
vantar hins vegar löggilt aðsetur til þess að geta skráð sig. Belgar, sem eru að
opna nýja skrifstofu fyrir eigin samtök í Brüssel, buðu óvænt UEPS að vera með
aðsetur í sýnum nýjum höfuðstöðvum. Tillagan hafði ekki borist þingfulltrúm
þremur mánuðu fyrir þing eins og reglugerðir kveða á um og því urðu miklar
deilur um hana. Að lokum þvingaði stjórnin tillöguna í atkvæðagreiðslu og þá
gengu fulltrúar Danmerkur og Noregs út. Tillagan var að lokum samþykkt, aðallega
með atkvæðum austurblokkarinnar og aðsetur UEPS verður því í Brüssel. Að öðru
leyti var AIPS þingið til fyrirmyndar og gestgjöfum þess, Austurríki, til sóma.
Forseti AIPS; Ítalinn Gianno Merlo, bað fyrir um kveðjur til Íslands.
Gar

Frá háborðinu. Esat Yilmaer varaframkvæmdastjóri AIPS, Carlos Garcia fyrsti varaforseti, Gianni Merlo forseti og Charles Camenzuli sem sagði af sér sem framkvæmdastjóri AIPS.

Það gafst smá tími fyrir siglingu. Svíþjóð, Ísland og Litháen báru saman bækur sínar.