Formannafundur í Osló
(Nóv. 07) Ţriđjudaginn 27. nóvember var haldinn árlegur
formannafundur hjá samtökum íţróttafréttamanna á Norđurlöndunum, ađ ţessu sinni
í Osló. Formenn Íslands, Noregs, Svíţjóđar, Danmerkur og Finnlands mćttu til
ţess ađ bera saman bćkur sínar og fara yfir ýmis málefni sem snúa ađ
íţróttafréttamönnum á Norđurlöndunum.
Hvert og og eitt land fór yfir starfsemi í sínu félagi og ţau ýmsu mál sem ţarf
ađ takast á viđ í dagsins önn og var ótrúlegt hversu svipuđ mál koma upp á
borđiđ. Á öllum Norđurlöndunum er ţetta sífelld barátta um bćttari og betri
ađstöđu fyrir íţróttafréttamenn í stćrstu greinunum. Öll samtökin, nema ţau
dönsku, standa fyrir vali á íţróttamanni ársins. Dönsku samtökin hćttu ţessu
vali fyrir nokkrum árum eftir ađ íţróttamađur ársins í Danmörku féll á
lyfjaprófi.
Einnig var rćtt um síđasta ársţing
AIPS og hvađa áherslur Norđurlöndin verđa međ á nćsta ţingi. Ćtlunin er ađ reyna
ađ koma einum fulltrúa í framkvćmdastjórnina. Einnig var fariđ yfir síđasta UEPS
ţing sem Norđurlöndin voru afar óhress međ enda hefur austurblokkin í Evrópu
tekiđ yfir ţau ađ mestu og Norđurlöndin eiga ţar engan fulltrúa í stjórn.
Í dönsku samtökunum eru um 600
međlimir, svipađur fjöldi í ţeim norsku, um 1200 í Svíţjóđ en stćrstu samtökum
eru í Finnlandi eđa međ 1500 međlimi (ţá eru svokallađir aukameđlimir taldir
međ). Í íslensku samtökunum eru 24 íţróttafréttamenn.
Formannafundurinn var hinn gagnlegasti og fróđlegt og skemmtilegt ađ hitta
kollegana á hinum Norđurlöndunum.
Ţorsteinn Gunnarsson, formađur
SÍ