Formannafundur
í Reykjavík
(Sept. '08) Formenn
samtaka íþróttafréttamanna á Norðurlöndunum hittust í Reykjavík mánudaginn
22. september síðastliðinn. Þetta er þriðja árið í röð sem formennirnir
hittast en þar er farið yfir ýmis mál sem varða íþróttafréttamenn á
Norðurlöndum, einnig heimssamtökin (AIPS) og Evrópusamtökin (UEPS) og svo
Norðurlandaþingið sem er á næsta ári. .
Til Íslands komu Reidar Sollie
frá Noregi, Esa Maaranen frá Finnlandi, Steen Ankerdal frá Danmörku en því
miður komst Bertil Guslen ekki frá Svíþjóð þar sem bókun hans fyrirfórst hjá
flugfélaginu. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna á
Íslandi stjórnaði fundinum, Jón Kristján Sigurðsson gjaldkeri SÍ var einnig
á fundinum ásamt Adolfi Inga Erlingssyni en fyrrverandi formönnum er einnig
boðið að vera með á heimavelli.
Gianno Merlo, forseti AIPS, sendi
Norðurlöndunum bréf sem tekið var fyrir á fundinum þar sem biðlað var til
Norðurlandanna að takan virkan þátt í að efla AIPS. Næsta heimsþing verður í
Mílanó mánaðarmótin apríl/maí en það er kosningaþing og því mikið um að
vera. Norðurlöndin ætla að sameinast um að bjóða fram einn fulltrúa í
framkvæmdastjórn AIPS og var unnið að þeim undirbúningi á fundinum og
tilkynnt síðar hver fulltrúi þeirra verður. Einnig var ákveðið að
Norðurlöndin bjóði fram fleiri fulltrúa í ýmsar nefndir AIPS.
Farið var yfir ýmis önnur
hagsmunmál sem gert verður grein fyrir á næsta félagsfundi Samtaka
íþróttafréttamanna.
Formannafundurinn tókst virkilega
vel en hann var haldinn á Grandhótel og var SÍ til mikils sóma.
