FRÉTTIR 2006

 

Guðjón Valur íþróttamaður ársins 2006

(Des. '06) Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson var valinn íþróttamaður ársins 2006 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðjón Valur verður þessa heiðurs aðnjótandi. Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen, sigurvegari síðustu tveggja ára, varð í öðru sæti og handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson þriðji.

Guðjón Valur hlaut alls 405 stig í kjörinu en Eiður Smári 333. Þeir tveir höfðu töluverða yfirburði í kjörinu en Ólafur hlaut 188 stig.

Guðjón Valur átti frábært tímabil með liði sínu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í ár og var meðal annars markahæsti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð. Guðjón Valur var einnig valinn besti leikmaður deildarinnar af leikmönnum hennar. Þá hefur hann spilað frábærlega fyrir íslenska landsliðið í ár og var í hópi betri leikmanna þess á Evrópumótinu sem fram fór í febrúar sl.
Þetta var í 51. skipti sem verðlaunin eru veitt en að þessu sinni fylgdi nýr og glæsilegur verðlaunagripur sæmdarheitinu íþróttamaður ársins.  meira

Nánar um 10 stigahæstu hér.

 

 

 

 

 

 


Danirnir hrifnir

Gjaldkeri kollega okkar í Danmörku, "Danske Sportjournalister", Fleming Olesen, var gestur í 50 ára afmælisveislu SÍ í október síðastliðinn. Á heimasíðu dönsku samtakanna skrifar hann grein um afmælið þar sem hann fer fögrum orðum um gestrisni okkar og segir afmælisveisluna hafa verið  "med manér".

Greinina má lesa hér á heimasíðu dönsku samtakanna:

http://danskesportsjournalister.dk/section/news/visnyhed.asp?menu=1&skjulnav=1&id=22701


10 efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2006

(Des. '06) Atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna  um Íþróttamann ársins 2006 hafa verið talin og liggur ljóst fyrir hvaða tíu íþróttamenn urðu í efstu sætum í kjörinu. 
Nöfn þeirra í stafrófsröð eru:

Auðunn Jónsson, kraftlyftingamaður úr Krafti, Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona hjá Malmö FF, Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá Barcelona, Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður hjá Gummersbach, Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona hjá Duisburg, Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður hjá Ciudad Real, Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona úr TBR, Sif Pálsdóttir, fimleikakona úr Gróttu, og Örn Arnarson, sundmaður úr SH.   meira


Topp 10 listinn frá upphafi

 

(Des '06) Tekinn hefur verið saman listi yfir tíu efstu íþróttamenn ársins öll þau 50 ár sem kjörið hefur farið fram. Óskar Ófeigur Jónsson, íþróttafréttamaður á DV, sá um það. Yfirlitið er hið fróðlegasta og má sjá með því að smella hér.

 


 

Kjör íþróttamanns ársins 2006 verður 28. desember

 

(Des '06) Íþróttamaður ársins 2006 verður útnefndur í hófi á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 28. desember nk. Kjörið, sem fram fer í 51. skipti, verður með hefðbundnu sniði en nýr verðlaunagripur fylgir sæmdarheitinu Íþróttamaður ársins að þessu sinni. Nöfn tíu efstu í kjörinu verða birt í dagblöðunum viku fyrir hófið. Sýn og Sjónvarpið sýna bent frá kjöri Íþróttamanns ársins. Að vera valinn Íþróttamaður ársins er mesta viðurkenning sem íslenskur íþróttamaður getur fengið.

 


Verðlaunagripur SÍ á Þjóðminjasafnið - ÍSÍ gefur nýjan og glæsilegan verðlaunagrip í staðinn

(Des. ´06) Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands boðuðu til fréttamannafundar á Þjóðminjasafni Íslands fullveldisdaginn 1. desember. Tilefnið var tvíþætt. Annars vegar að afhenda Þjóðminjasafni Íslands styttuna góðu sem hefur fylgt sæmdarheitinu Íþróttamaður ársins undanfarin 50 ár. Hins vegar að Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands lét  hanna og útbúa nýjan og stórglæsilegan verðlaunagrip sem ætlaður er Íþróttamanni ársins næstu 50 árin og hann var afhentur SÍ. Á meðal gesta voru íþróttafréttamenn, menntamálaráðherra, forystumenn í íþróttahreyfingunni og þó nokkrir af fyrrverandi Íþróttamönnum ársins.

Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna sagði í upphafi að þetta væri stór menningarsögulegur viðburður því fyrir kannski fyrir utan Grettisbeltið ætti líklega enginn annar íslenskur verðlaunagripur eins merka sögu.

Atli Steinarsson, fyrsti formaður Samtaka íþróttafréttamanna, rakti sögu meira


 

50 ára saga Samtaka íþróttafréttamanna

 

(Nóv. ´06) Á 50 ára afmæli Samtaka íþróttafréttamanna flutti Skapti Hallgrímsson, fyrrverandi formaður SÍ, ræðu þar sem hann fór yfir 50 ára sögu samtakanna. Skapti kom víða við og fengum við góðfúslegt leyfi hans til þess að ræðu hans hér:

 

Forseti Íslands, ágætu gestir.

 

Allir verða að hafa í sig og á – og það eru forréttindi að hafa áhugamálið að lifibrauði.

 

Meðlimir Samtaka íþróttafréttamanna eru í þessari sérstöku aðstöðu. Þeir fylgjast með íþróttum alla daga og fá ekki bara frítt á völlinn heldur fá þeir borgað fyrir það! eins og það var einhvern tíma orðað við mig.

 

Samtökin eru að sumu leyti sérstakur félagsskapur; íþróttafréttamenn eru keppinautar, berjast alla daga um fréttir og að segja betur frá en hinir – en svo eru menn auðvitað vinir og félagar inná milli. Það er óhætt að segja að oft hafi gustað um menn í Samtökunum, sjaldan hefur verið lognmolla í starfinu enda félagarnir jafnan kraftmiklir menn og fjörugir.

 

Samtökin voru stofnuð á skrifstofu Halls Símonarssonar, blaðamanns á Tímanum, í Edduhúsinu. Í fundargerðarbók samtakanna segir:

 

“Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna félag með sér er miði að því að vinna að betri aðstöðu við störf þeirra  meira

 


Hlýjar kveðjur frá forseta ÍSÍ

(Nóv. ´06) Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, skrifar grein um Samtök íþróttafréttamanna á heimasíðu ÍSÍ sem ber einfaldlega yfirskriftina "Samtök íþróttafréttamanna". Þar vekur hann m.a . athygli á því að íþróttahreyfingin hugi betur  að aðstöðu íþróttafréttamanna. Greinin kemur hér í heild sinni:
 
Um þessar mundir fagna Samtök íþróttafréttamanna 50 ára afmæli. Upphaf samtakanna má rekja til afreka Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956 er hann hlaut silfurverðlaun í þrístökki eins og hverju mannsbarni á Íslandi ætti að vera kunnugt um.

Varð afrek Vilhjálms til þess að farið var að huga að kjöri á íþróttamanni ársins, og lá beint við að íþróttafréttamenn landsins hlutuðust til um slíkt val – líkt og gert hefur verið allar götur síðan með sama hætti – síðar í afar heilladrjúgu samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands með sameiginlegum viðburði sem teljast  meira
 


Nýr verðlaunagripur smíðaður með vísun til náttúru Íslands

(Nóv. ´06) Sigurður Ingi Bjarnason, gullsmiður, hannaði og smíðaði nýjan verðlaunagrip sem fylgir sæmdarheitinu Íþróttamaður ársins og er gefinn af ÍSÍ. Helena Pálsson, eiginkona Sigurðar Inga, flutti ávarp á 50 ára afmæli SÍ þegar gripurinn af afhjúpaður í fyrsta sinn. Hér á eftir fylgir ræða Helenu þar sem útskýrt er hvaða hugmyndir liggja að baki þessu glæsilega listaverki:

Nýr verðlaunagripur til handa afreksfólki íslenskra íþrótta hefur verið smíðaður fyrir ÍSÍ. Verkið er smíðað með vísun í náttúru Íslands sem mótað hefur þessa þjóð og hennar þrótt allar götur síðan fyrstu Íslendingarnir stigu fæti á þessa grund. Náttúra Íslands endurspeglast í margvíslegu efni verksins, lögun þess og litbrigðum. Þessir eiginleikar verksins vísa um leið til fjölbreytni íþróttanna og þess styrks og þeirrar þrautseigju sem einkenna afreksmenn íslenskra íþrótta hverju sinni.

Hér er við hæfi að tíunda hvaða íslenski efniviður eru í verðlaunagripnum góða.

Birkið kemur úr Hallormsstaðarskógi og vísar til þolgæðis íslenska birkisins. Þessarar plöntu sem vex með jörðu og út úr klettaveggjum gljúfra frekar en að gefa eftir en teygir síðan stofna sína beina til himins þegar heppilegt umhverfi er að finna.

Hraunið í verkinu kemur frá Þingvöllum, þar sem undirstöðu lands vors og þjóðar er að finna. Þessarar náttúruperlu Íslands og þjóðheilaga staðar þar sem Alþingi vort var stofnað og viðhaldið með tilheyrandi íþróttaiðkun á hverjum tíma. Því er við hæfi að það hraun ásamt birkinu séu til...
meira


 

Glæsilegt 50 ára afmæli - og ný stytta

 

(Okt. '06) Samtök íþróttafréttamanna héldu upp á 50 ára afmæli sitt með pompi og pragt í Eldborg í Bláa lóninu laugardagskvöldið 28. október.  Ný glæsileg stytta sem fylgir sæmdarheitinu Íþróttamaður ársins, var afhjúpuð á afmælinu en hún er íslensk smíði.

 

Mikið var um dýrðir á 50 ára afmæli Samtaka íþróttafréttamanna. Kvöldið hófst með kokteilveislu í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, tók á móti félagsmönnum SÍ, mökum og gestum. Síðan var haldið með rútu í Eldborg, sal Hitaveitu Suðurnesja. Samúel Örn Erlingsson var veislustjóri en formaður SÍ, Þorsteinn Gunnarsson, opnaði hófið. Í máli hans kom fram að hafin er ritun 50 ára sögu Íþróttamanns ársins í samstarfi við Edduútgáfu. Hallgrímur Indriðason, fyrrverandi íþróttafréttamaður og núverandi fréttamaður á Ríkisútvarpinu, ritar söguna en fyrir ritnefndinni fer Sigurður Svavarsson frá Edduútgáfu. Áætlað er að bókin komi út næsta haust.

 meira

 


 

50 ára afmæli Samtaka íþróttafréttamanna

(Sept. '06) 50 ára afmæli Samtaka íþróttafréttamanna  verður haldið í Eldborg, laugardagskvöldið 28. október nk. Þetta er í sal Hitaveitu Suðurnesja við Bláa lónið. Félagsmenn og makar þeirra þurfa ekki að greiða fyrir aðgöngumiða. Fyrrverandi félagar geta keypt miða á 2.400 kr. Veislustjóri er Samúel Örn Erlingsson. Á meðal skemmtiatriða má nefna landskeppni í glímu, Ólafur Kjartan Sigurðarson baritonsöngvari tekur lagið líkt og þá mætir hinn síungi Ragnar Bjarnason ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni. Sérstakur heiðursgestur verður Atli Steinarsson, eini núlifandi stofnfélagi Samtakanna. Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heiðrar SÍ með því að mæta í afmælið.

meira


 

Óbreytt fyrirkomulag á kjöri Íþróttamanns ársins

 

(Ágúst '06) Samþykkt var á framhaldsaðalfundi Samtaka íþróttafréttamanna  25. ágúst 2006 að halda kjöri Íþróttamanns ársins óbreyttu. Fyrir lá tillaga um að kynjaskipta kjörinu þannig að kosinn yrði Íþróttamaður ársins og Íþróttakona ársins. Styttan sem fylgt hefur kjörinu síðustu fimmtíu árin verður nú tekin úr umferð og nýr gripur því afhentur þeim íþróttamanni sem verður kjörinn fyrir þetta ár. Fannst því félögum í SÍ réttur tími til að íhuga hvort gera ætti einhverjar breytingar. Niðurstaðan varð sú að tillagan var felld og ákveðið að halda kjörin óbreyttu.

 

Vissum ekki hvort kjörið entist svona lengi

(Morgunblaðið jan. '06) Íþróttamaður ársins var valinn í 50. sinn við hátíðlega athöfn sl. þriðjudag og ljóst að nafn Eiðs Smára Guðjohnsen er það síðasta sem fer á verðlaunagripinn sem tekinn verður úr umferð að ári liðnu.

 

SAMTÖK íþróttafréttamanna standa á tímamótum

meira