|
FRÉTTIR
Heiðar
Helguson er íþróttamaður ársins 2011
(Maí '11)
Heiðar Helguson var í kvöld útnefndur íþróttamaður ársins 2011 af Samtökum
íþróttafréttamanna en hófið fór fram á Grand Hótel. Heiðar hlaut 229 stig í
kjörinu, 30 meira en spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir sem varð í öðru sæti.
Körfuboltamaðurinn Jakob Örn Sigurðarson varð síðan í þriðja sæti með 161 stig.
Þetta var í 56. sinn sem íþróttamaður ársins er valinn og er Heiðar að fá þessi
verðlaun í fyrsta sinn en hann hafði aldrei áður verið meðal tíu efstu. Heiðar
er 37. íþróttamaðurinn sem verður þessa heiðurs aðnjótandi en ellefu sem hafa
verið kosnir íþróttamenn ársins hafa unnið þessi verðlaun oftar en einu sinni.
Heiðar er sjöundi knattspyrnumaðurinn sem er kosinn íþróttamaður ársins og sá
fyrsti síðan að Margrét Lára Viðarsdóttir var valin árið 2007. Knattspyrnumenn
hafa hlotið verðlaunin níu sinnum því bæði Ásgeir Sigurvinsson og Eiður Smári
Guðjohnsen hafa hlotið þessa viðurkenningu tvisvar sinnum.
Knattspyrnufólk var annars áberandi meðal efstu manna í kjörinu því Sara Björk
Gunnarsdóttir varð í 4. sæti, Kolbeinn Sigþórsson í 5. sæti og Þóra Björg
Helgadóttir endaði í 6. sæti í kjörinu í ár.
31 íþróttamaður fékk atkvæði að þessu sinni og komu þeir úr sextán
íþróttagreinum.
Óskar Ófeigur
Jónsson skrifaði fyrir
Vísi.
Átta nýliðar
í hópi tíu efstu
(Desember '11)
Allir 22 meðlimir Samtaka íþróttafréttamanna nýttu atkvæðisrétt sinn í kjöri
íþróttamanns ársins sem verður lýst á Grand Hótel í Reykjavík þann 5. janúar
næstkomandi. Alls fékk 31 íþróttamaður atkvæði en eins og venjan er á aðfangadag
eru hér tilkynntir þeir tíu íþróttamenn sem fengu flest atkvæði, í stafrófsröð:
Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir, Val (handbolti)
Aron Pálmarsson,
THW Kiel (handbolti)
Ásdís
Hjálmsdóttir, Glímufélaginu Ármanni (frjálsíþróttir)
Heiðar Helguson,
Queens Park Rangers FC (knattspyrna)
Jakob Örn
Sigurðarson, Sundsvall Dragons (körfubolti)
Kári Steinn
Karlsson, Breiðabliki (frjálsíþróttir)
Kolbeinn
Sigþórsson, AFC Ajax (knattspyrna)
Ólafur Björn
Loftsson, Nesklúbbinum (golf)
Sara Björk
Gunnarsdóttir, LdB FC Malmö (knattspyrna)
Þóra Björg
Helgadóttir, LdB FC Malmö (knattspyrna)
Þess má geta að
aðeins tveir af ofantöldum hafa áður komist í hóp tíu efstu í kjöri íþróttamanns
ársins. Þóra Björg tvívegis og Aron einu sinni. Enginn úr þessum hópi hefur þó
hlotið sæmdarheitið áður og því ljóst að nýtt nafn bætist í hóp þeirra útvöldu
þegar íþróttamaður ársins verður útnefndur í 56. sinn.
Nýr félagi í
SÍ - stjórnin óbreytt
(Maí '11)
Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn þann 20. maí í fundarsal UMFÍ.
Sigurður Elvar Þórólfsson var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára en
hann var að ljúka sínu fyrsta kjörtímabili. Gjaldkeri og ritari stjórnar eru
kosnir til eins árs í senn og voru þeir Jón Kristján Sigurðsson og Eiríkur
Stefán Ásgeirsson endurkjörnir í þær stöður. Enginn stjórnarmeðlimur fékk
mótframboð.
Hjörtur Júlíus
Hjartarson og Tómas Þór Þórðarson verða áfram varamenn í sjórn.
Ein
aðildarumsókn barst og var hún samþykkt einróma. Haukur Harðarson,
íþróttafréttamaður á Rúv, er því nýjasti meðlimur SÍ sem telur nú 22 meðlimi.
Engin umsókn um aukafélagsaðild barst.
Engar tillögur
bárust um lagabreytingar og engar athugasemdir voru gerðar við ársreikninga. Þá
var farið yfir starfsárið á fundinum eins og venja er.
Aðalfundur
20. maí 2011
(Maí '11)
Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna boðar til aðalfundar föstudaginn 20. maí
næstkomandi. Fundað verður í höfuðstöðvum UMFÍ í Sigtúni 42. Fundurinn hefst
klukkan 13.00.
Venjuleg
aðalfundarstörf.
Erlingur fékk
heiðursverðlaun AIPS
(Janúar '11)
AIPS, sem eru alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, veittu í gær sundþjálfaranum
Erlingi Jóhannssyni heiðursviðurkenningu en Erlingur lést á síðasta ári.
Erlingur var einn af frumkvöðlum í sundþjálfun fatlaðra á Íslandi og fékk hann
AIPS Power of Sports Awards verðlaunin á hátíðarsamkomu AIPS í Sviss í gær.
Nawal El Moutawakel frá Marokkó og May El Khalil frá Líbanon fengu einnig þessa
viðurkenningu. Moutawakel er fyrsta konan frá Afríku sem vann til gullverðlauna
á Ólympíuleikum og Khalil er frumkvöðull að maraþonhlaupi sem fram fer í Beirút
árlega
Halldór Guðbergsson sem keppti á heimsleikum fatlaðra í tvígang, 1988 og 1992
tók við verðlaununum fyrir hönd Erlings. Halldór æfði sund undir handleiðslu
Erlings og þeir fóru saman á heimsleika. Halldór sagði m.a. að það væri mikill
heiður fyrir hann að taka við þessari viðurkenningu fyrir hönd vinar síns.
Frétt á vef
AIPS.
Alexander
kjörinn íþróttamaður ársins 2010
(Janúar '11)
Handknattleiksmaðurinn Alexander Petersson var í kvöld kjörinn íþróttamaður
ársins 2010. Kjörið er sögulegt að því leyti að Alexander er fyrsti maðurinn af
erlendu bergi brotinn til þess að hljóta nafnbótina. Hann er fæddur í Lettlandi
árið 1980 en hefur verið íslenskur ríkisborgari síðan 2004.
Þetta er í 55. sinn sem kosið er um íþróttamann ársins en það eru samtök
íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu.
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson varð annar í kjörinu og fimleikakonan
Íris Mist Magnúsdóttir varð þriðja en það er besti árangur fimleikakonu frá
upphafi í kjörinu.
Handboltamenn eru áberandi á topp tíu listanum að þessu sinni enda stóð
landsliðið sig frábærlega á EM í Austurríki og margir lykilmanna liðsins einnig
að gera góða hluti í Evrópuboltanum. Alexander er sjötti handboltamaðurinn á níu
árum sem kjörinn er íþróttamaður ársins.
Járnmaðurinn Alexander hefur unnið hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar á
undanförnum árum með óeigingjörnum og baráttuglöðum leik sínum. Hann er algjör
lykilmaður í landsliðinu og stóð sig líkt og vanalega frábærlega á EM. Hann fékk
fá tækifæri framan af ári hjá Flensburg en átti nær undantekningalaust góðan
leik er hann fékk tækifæri. Hann söðlaði síðan um í sumar og gekk í raðir Fuchse
Berlin sem Dagur Sigurðsson þjálfar.
Berlinarliðið hefur slegið í gegn í þýsku úrvalsdeildinni í vetur og komið öllum
handboltaspekingum á óvart. Þar hefur Alexander farið mikinn og sýnt svo ekki
verður um villst að hann er á meðal þeirra bestu. Alexander er þess utan frábær
fyrirmynd. Auðmjúkur í framkomu, harðduglegur atvinnumaður sem lætur verkin tala
og hlífir sér hvergi fyrir félaga sína.
Henry Birgir
Gunnarsson skrifaði fyrir
Vísi.
Nadal og
Vlasic best hjá AIPS
(Desember '10)
Tennismaðurinn Rafael Nadal frá Spáni og Blanka Vlasic, hástökkvari frá Króatíu
voru valin íþróttamenn ársins af alþjóða samtökum íþróttafréttamanna, AIPS.
Nadal er efstur á heimslista tenniskarla um þessar mundir eftir að hafa unnið
þrjú af fjórum stærstu mótum ársins í tennisheiminum. Nadal fékk 16,32% atkvæða
í kjörinu sem á fimmta þúsund íþróttafréttamenn tóku þátt í frá 93 löndum. Annar
varð Lionel Messi knattspyrnumaður hjá Barcelona með 14,97% og Andrés Iniesta
samherji Messi hjá Barcelona varð þriðji.
Vlasic hafði yfirburði í hástökki kvenna á þessu ári. Hún vann 18 af þeim 20
mótum sem hún tók þátt í og varð Evrópumeistari í hástökki utandyra og
heimsmeistari í hástökki innandyra. Vlasic fékk 19,76% atkvæða í kjörinu.
Skíðakonan Lindsay Vonn varð önnur með 15.25% atkvæða og þriðja sætið kom í hlut
tenniskonunnar Kim Clijsters frá Belgíu.
Félagsmenn AIPS völdu spænska landsliðið í knattspyrnu karla lið ársins. Fékk
það yfir 40% atkvæða. Kanadíska íshokkí landsliðið varð í öðru sæti og
blaklandslið Brasilíu í karlaflokki hreppti þriðja sætið.
Best heppnaði íþróttaviðburður ársins var að mati félagsmanna AIPS
heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla í Suður Afríku, Þar á eftir komu
Vetrarólympíuleikarnir í Kanada og Wimbledon-mótið í tennis var í þriðja sæti.
Birtist á
mbl.is.
Sex ný nöfn á
listanum
(Desember '10)
Í dag, Þorláksmessu, voru birt nöfn þeirra tíu íþróttamanna sem efstir urðu í
kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um íþróttamann ársins árið 2010. Alls fengu 26
íþróttamenn atkvæði í kjörinu en allir 21 meðlimur SÍ nýtti atkvæðisrétt sinn að
þessu sinni.
Til fróðleiks má
nefna að Ólafur Stefánsson er á listanum í tólfta sinn á sínum ferli. Þeir
Alexander Petersson, Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir
hafa einu sinni verið áður í hópi þeirra tíu bestu. Aðrir, sex talsins, eru
nýliðar á listanum.
Íþróttamennirnir
sem eru tilnefndir eru eftirfarandi, í stafrófsröð:
Alexander
Petersson, handknattleiksmaður
Arnór Atlason, handknattleiksmaður
Aron Pálmarsson, handknattleiksmaður
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona
Hlynur Bæringsson, körfuknattleiksmaður
Hólmfríður Magnúsdóttir, knattspyrnukona
Hrafnhildur Lúthersdóttir, fimleikakona
Íris Mist Magnúsdóttir, sundkona
Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður
Kjörinu verður
lýst á Grand Hótel þann 5. janúar næstkomandi og verður hófið í beinni
útsendingu í sjónvarpi Rúv.
Nýr meðlimur
(Desember '10)
Nýr meðlimur var tekinn inn í Samtök íþróttafréttamanna á fundi þeirra í dag,
mánudaginn 19. desember. Magnús Már Einarsson er starfsmaður vefsíðunnar
Fótbolti.net og er 21. núverandi meðlimur samtakanna.
SÍ býður hann
velkominn.
Engar
breytingar á stjórn
(Maí '10)
Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna fór fram miðvikudaginn 12. maí
síðastliðinn. Ekki var kosið til formanns í þetta skiptið en Sigurður Elvar
Þórólfsson á nú eitt ár eftir af kjörtímabili sínu. Aðrir stjórnarmeðlimir eru
kosnir til eins árs í senn. Jón Kristján Sigurðsson var endurkjörinn gjaldkeri
og Eiríkur Stefán Ásgeirsson sem ritari. Þeir fengu engin mótframboð og hlutu
einróma kosningu.
Kosið var um
nýja varamenn stjórnar og hlutu þeir Tómas Þór Þórðarson og Hjörtur Hjartarson
einróma kosningu.
Tveir nýir
meðlimir voru teknir inn í SÍ á fundinum. Þeir eru Einar Örn Jónsson, RÚV og
Kristján Jónsson, Morgunblaðinu. Fullgildir meðlimir eru því tuttugu talsins.
Tvær umsóknir,
frá Þorsteini Gunnarssyni og Skúla Unnari Sveinssyni, um aukafélagaaðild bárust
aðalfundinum og voru samþykktar.
Engar tillögur
bárust um lagabreytingar. Farið var yfir starfsárið og ársreikningar kynntir.
Aðalfundur
12. maí
(Maí '10)
Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna boðar til aðalfundar miðvikudaginn 12. maí
næstkomandi. Fundað verður í höfuðstöðvum UMFÍ í Sigtúni 42. Fundurinn hefst
klukkan 12.00.
Venjuleg
aðalfundarstörf.
Heimasíðan
aftur virk
(Maí '10)
Eftir rúmt ár í dvala er heimasíða Samtaka íþróttafréttamanna,
www.sportpress.is, aftur orðin virk. Munu
því birtast fréttir af starfi félagsins og meðlima þeirra aftur hér eftir því
sem við á.
Ábendingar má
senda á stjórnarmeðlimi félagsins, sem má finna hér.
Adolf Ingi
kosinn í framkvæmdastjórn AIPS

(Apríl. '09)
Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi formaður SÍ, gerði sér lítið fyrir og náði
kosningu inn í framkvæmdastjórn AIPS (Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna).
Norðurlöndin sameinuðust um að
bjóða Adolf Inga fram en hann er öllum hnútum kunnugur innan AIPS eftir að hafa
starfað þar ötullega undanfarin ár. Adolf Ingi náði góðri kosning og flaug inn í
framkvæmdastjórnina! SÍ óska Adolfi Inga til hamingju með þennan áfanga en þetta
er í fyrsta skipti sem samtökin eignast fulltrúa þarna inni.
Sigurður
Elvar kjörinn nýr formaður SÍ
(Apríl. '09)
Aðalfundur SÍ fyrir árið 2008 var haldinn 22. apríl. Mæting var með ágætum en
alls mættu 13 manns en einn þurfti að yfirgefa samkomuna áður en yfir lauk en
alls eru 17 manns í félaginu.

Þorsteinn Gunnarsson, formaður SÍ,
flutti skýrslu stjórnar en mikið var um að vera á síðasta ári. Hæst bar kjörið á
íþróttamanni ársins en einnig fóru formaður og gjaldkeri á AIPS þing í Pekíng.
Haldið var golfmót samtakanna en skugga bar á starfið í haust hversu margir
íþróttafréttamenn misstu starfið sitt í kjölfar bankahrunsins. Þá komu ýmis mál
inn á borð stjórnar vegna aðstöðuleysis á leikvöngum og fleira.
Jón Kristján Sigurðsson gjaldkeri
lagði fram ársreikninga. Vegna uppgjörs á kostnaði við útgáfu bókarinnar
Hetjurnar okkar varð tap á rekstri félagsins en engu að síður varð góður
hagnaður á bókinni þegar uppi varð staðið.
Þá var komið að kosningum í
stjórn. Þorsteinn gaf ekki kost á sér í formannsembætti og buðu tveir sig fram,
Sigurður Elvar Þórólfsson og Adolf Ingi Erlingsson. Kosið var á milli þeirra og
svo fór að Sigurður Elvar hafði betur í hörku slag og var því rétt kjörinn nýr
formaður SÍ. Guðmundur Hilmarsson gekk einnig úr stjórn og var Eiríkur Stefán
Ásgeirsson kjörinn í hans stað. Jón Kristján Sigurðsson var kjörinn áfram sem
gjaldkeri. Í varastjórn voru kjörnir Hrafnkell Kristjánsson og Skúli Unnar
Sveinsson.
Þá voru gerðar breytinga á lögum
SÍ sem taka tillit til þeirra aðstæðna sem ríkja á íslenskum atvinnumarkaði í
dag.
Undir liðnum önnur mál bar ýmislegt á góma en m.a. var samþykkt tillaga Víðis
Sigurðssonar að fela stjórninni að finna flöt á því að aðstoða félagsmenn til
þess að koma faglegum ábendingum á framfæri um íslenskt mál.
Aðalfundur SÍ
fyrir árið 2008
(Apríl. '09)
Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna fyrir árið 2008 verður haldinn
miðvikudaginn 22. apríl nk. kl. 11 á skrifstofum UMFÍ.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum félagsins:
I. Inntaka nýrra félaga
II. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
III. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram.
IV. Lagabreytingar.
V. Stjórnarkosning.
VI. Árgjald félagsmanna.
VII. Önnur mál.
VIII. Fundargerð lesin upp, fundarslit.
ATH! Tillögur að lagabreytingum
þurfa að berast tveimur sólarhringum fyrir aðalfund samkvæmt lögum.
Enn fækkar í
stéttinni
(Feb. '09)
Breytingar voru gerðar á ritstjórn Fréttablaðsins og Vísis þannig að
íþróttadeildir þessara miðla voru sameinaðar í eina og fækkað um eitt
stöðugildi. Baldri Beck, íþróttafréttamanni á Vísi.is, var sagt upp störfum. Þrír
íþróttafréttmenn eru því eftir á Fréttablaðinu og Vísi og munu þeir hér eftir
sjá um skrif í báða miðlana.
Adolf Ingi í
framboð
(Feb. '09)
Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaður á RÚV og fyrrum formaður SÍ, hefur
ákveðið að bjóða sig fram í framkvæmdastjórn Alþjóðasamtaka íþróttafréttamanna,
AIPS. Samtökin á Norðurlöndunum ákváðu að tefla fram einum fulltrúa og var
leitað til Adolfs Inga enda með margra ára starfsreynslu innan AIPS og UEPS.
Heimsþing AIPS fer að þessu sinni fram í Mílanó á Ítalíu um mánaðarmótin
apríl/maí. Samtök íþróttafréttamanna styðja við bakið á Adolfi Inga í
kosningabaráttunni. Ísland hefur aldrei átt fulltrúi í framkvæmdastjórn AIPS.
37% áhorf á
íþróttamann ársins
(Feb. '09)
Hvorki fleiri né færri en 37% landsmanna fylgdust með kjöri íþróttamanns ársins,
samkvæmt mælingu á sjónvarpsáhorfi vikuna 29. des. til 3. janúar. Aðeins
áramótaskaup sjónvarpsins hafði meira áhorf. Þetta staðfestir tilfinningu félaga
í Samtökum íþróttafréttamanna hversu mikið áhorf er á þennan magnaða viðburð!

Nadal og
Isinbayeva
(Jan. '09)
Spænski tenniskappinn Rafael Nadal og rússneska stangarstökksdrottningin Yelena
Isinbayeva voru kjörin íþróttamenn árisns 2008 í Evrópu af Samtökum
íþróttafréttamanna í álfunni. Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo
varð annar í kjöri karla og Bretinn Lewis Hamilton heimsmeistari í kappakstri
þriðji. Þýska sundkonan Britta Steffen varð önnur kjöri kvenna og belgíska konan
Tia Hellebaut Ólympíumeistari í hástökki þriðja.
Á atkvæðaseðli Samtaka íslenskra íþróttafréttamanna voru Ronaldo og Isinbayeva í
efsta sæti.
Samúel Örn
sæmdur gullmerki SÍ
(Jan. '09)
Samúel Örn Erlingsson var sæmdur gullmerki Samtaka íþróttafréttamanna í samkvæmi
samtakanna að loknu kjörki íþróttamanns ársins 2008 á Grand Hótel. Samúel Örn
hóf störf sem íþróttafréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu 1981, hann var yfirmaður
deildarinnar um árabil og hætti störfum á síðasta ári. Samúel Örn var formaður
Samtaka íþróttafréttamanna 1984-1987 auk annarra stjórnarstarfa og lét mikið til
sín taka á alþjóða vettvangi íþróttafréttamanna en hann sat í stjórn
Evrópusamtakanna í nokkur ár. Þess má geta að fyrsta embættisverk hans
fyrir SÍ á sínum tíma var að slá víxil svo samtökin gætu haldið Norðurlandaþing
með sóma!
Ólafur
Stefánsson íþróttamaður ársins 2008 með fullu húsi stiga
(Jan. '09)
„ÞETTA var ótrúlegt ár hjá mér, jafnt líkamlega sem andlega og hreinlega bara á
öllum sviðum. Ég er afar þakklátur fyrir það,“ sagði Ólafur Stefánsson
handknattleiksmaður í samtali við Morgunblaðið eftir að hann var kjörinn
Íþróttamaður ársins 2008 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta var í þriðja sinn
sem Ólafur hreppir hnossið en hann varð einnig fyrir valinu 2002 og 2003. Að
þessu sinni hlaut Ólafur fullt hús stiga í kjörinu, 480. Í öðru sæti varð Snorri
Steinn Guðjónsson, handknattleiksmaður, og í þriðja sæti varð Margrét Lára
Viðarsdóttir knattspyrnukona.
„Ég er að toppa núna sem íþróttamaður 35 ára gamall vegna þess að fram kom hópur
fullbúinna einstaklinga sem eru með mér í liði auk þess sem þjálfarinn er
frábær,“ sagði Ólafur og vísar þar til félaga sinna í íslenska landsliðinu í
handknattleik og þjálfara þess, Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, sem á árinu unnu
til silfurverðlauna í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Peking. Eftir því
var tekið að á meðan Ólafur var hylltur af gestum, sem viðstaddir voru kjörið í
gær, vísaði hann út í salinn og benti á samherja sína í íslenska landsliðinu og
forystumenn handknattleikshreyfingarinnar sem þar sátu.
„Ég held að það sé alveg ljóst að ég stæði ekki í þessum sporum, að vera kjörinn
íþróttamaður ársins, án þess sem við unnum saman á Ólympíuleikunum þótt ég hafi
átt frábært ár með félagsliði mínu. Þar af leiðandi lít ég á mig sem fulltrúa
þessa hóps sem vann silfrið í Peking,“ sagði Ólafur spurður út í samherja sína
sem hann tileinkaði heiðurinn (meira)
Tíu efstu í
kjöri íþróttamanns ársins 2008
(23. des.
'08) Atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins
2008 hafa verið talin og liggur ljóst fyrir hvaða tíu íþróttamenn urðu í efstu
sætum í kjörinu.
Nöfn þeirra í stafrófsröð eru:
Alexander Petersson, handknattleiksmaður í Flensburg
Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður í Barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður í Rhein Neckar Löwen
Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður í Portsmouth
Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður í KR
Katrín Jónsdóttir, knattspyrnukona í Val
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona í Val
Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður í Ciudad Real
Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleiksmaður í GOG
Þormóður Jónsson, júdómaður JR
24 félagsmenn eru í Samtökum íþróttafréttamanna og nýttu allir þeirra
atkvæðisrétt sinn í kjörinu að þessu sinni. Atkvæðagreiðslan er leynileg og fer
þannig fram að hver félagsmaður SÍ setur saman lista með nöfnum tíu íþróttamanna
sem honum þykja hafa skarað fram úr á árinu.
Helstu styrktaraðilar Samtaka íþróttafréttamanna vegna kjörsins eru Glitnir og
Icelandair.
Kjörinu verður lýst á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 2. janúar klukkan
19.35 í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu.
Áður en kjöri íþróttamanns ársins verður lýst mun ÍSÍ afhenda viðurkenningar til
þeirra íþróttakarla og -kvenna hjá sérsamböndum sínum sem þótt hafa skarað fram
úr á árinu 2008. Þetta verður í fjórtánda sinn sem Samtök íþróttafréttamanna og
ÍSÍ standa að sameiginlegri hátíð sem nær hápunkti þegar Íþróttamaður ársins
2008 verður útnefndur.
Samtök
íþróttafréttamanna óska landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Samhugur Norðurlandaþjóðanna
(Des. '08) Samtök íþróttafréttamanna í Danmörku höfðu frumkvæðið
að því fyrir skömmu að Norðurlandaþjóðirnar settu á laggirnar sjóð fyrir
íslenska kollega sína í fjárhagskröggum, ef á þyrfti að halda.
Norðurlandaþjóðirnar Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland hafa samþykkt að
setja 10 þúsund evrur hver í sjóðinn sem verður því samanlagt 40 þúsund evrur
eða rúmar sex milljónir ísl. króna. Hugmyndin er að úr sjóðnum verði veitt
vaxtalaust lán til fimm ára fyrir þá íþróttafréttamenn á Íslandi sem lenta í
miklum erfiðleikum eftir atvinnumissi en sjö íþróttafréttamenn hafa misst
vinnuna á undanförnum vikum. Geta þeir sótt um lán úr sjóðnum samkvæmt nánari
reglugerð sem er í smíðum.
Á
félagsfundi Samtaka íþróttafréttamanna á Ísland 11. des. sl. var þessi samhugur
granna okkar þakkaður af heilum hug. Ef á þarf að halda næsta vor, þegar farið
verður að reyna meira á ástandið á atvinnumarkaðnum, mun koma í ljós hvort þörf
verður á slíkum sjóð.
Ísland hefur átt í farsælu samstarfi við aðrar Norðurlandaþjóðir á vettvangi
íþróttafréttamennsku frá stofnun Samtaka íþróttafréttamanna hér á landi, 1956.
Norðurlandaþing fara fram annað hvert ár og hafa nokkrum sinnum verið haldin hér
á landi, síðast 2005.
Yfirlýsing frá KKÍ
(Des. '08) Samtökum íþróttafréttamanna hefur borist eftirfarandi bréf
frá Körfuknattleikssambandi Íslands:
KKÍ styður ykkur heilshugar í þessari baráttu og vill um leið hvetja íslenskar
sjónvarpsstöðvar til að auka hlutfall innlends íþróttaefnis. Það mikla
forvarnargildi sem íþróttir hafa er ótvírætt og þess vegna ber að varast slíkan
niðurskurð því hann mun koma einna mest niður á umfjöllun um íslenskar íþróttir.
F.h. KKÍ
Friðrik Ingi Rúnarsson
Framkvæmdastjóri
Yfirlýsing frá Samtökum íþróttafréttamanna
(Des. '08) Samtök íþróttafréttamanna lýsa yfir þungum áhyggjum sínum
af uppsögnum íþróttafréttamanna að undanförnu. Samtökin skora á íslenska
fjölmiðla að halda uppi öflugum fréttaflutningi af íþróttum sem og að standa
vörð um beinar útsendingar af íslenskum íþróttum enda sýna fjölmiðlakannanir að
slíkt efni nýtur mikilla vinsælda og hefur ótvírætt forvarnargildi. Samtökin
skora á fjölmiðla að leita annarra leiða til hagræðingar en harkalegan
niðurskurð á íþróttaumfjöllun. Þá er skorað á fjölmiðla að standa vörð um
reynslumikla sveit íslenskra íþróttafréttamanna og að draga uppsagnir til baka.
Samþykkt á félagsfundi Samtaka íþróttafréttamanna 11. desember 2008.
Íþróttaumfjöllun í fjölmiðlum
(Des. ´08) Eftirfarandi grein ritaði Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, á
heimasíðuna www.isisport.is, þann 5.
desember 2008:
Íslenskir íþróttafréttamenn eru býsna merkileg stétt. Vissulega fámenn, en hefur
engu að síður tekist að byggja upp magnaða flóru íþróttaumfjöllunar þar sem
reynir á víðtæka og fjölbreytta þekkingu á íþróttum – sem staðist hefur býsna
vel samanburð við fjölmennar og sérhæfðar íþróttadeildir erlendra fjölmiðla.
Starfsaðstæður og vinnuumhverfi íþróttafréttamanna er í senn krefjandi og
ófjölskylduvænt. Þegar nú bætist við skert starfsöryggi og enn þrengri
möguleikar á faglegri umfjöllun fyrir þá fáu sem enn halda starfi sínu er ljóst
að hætta er á að uppbygging verðmætrar sérþekkingar fari forgörðum.
Enginn sleppur undan niðurskurði í efnahagssamdrætti. Óhjákvæmilegt er að slíkt
bitni á kostnaði við umfjöllun fjölmiðla um íþróttir líkt og aðra
fréttaumfjöllun. En fregnir af niðurskurði fjölmiðla benda til að of langt hafi
verið gengið varðandi íþróttaumfjöllun – sem virðist víða hafa orðið harðar
fyrir niðurskurði en önnur starfsemi. Slíkt er óásættanlegt og óskynsamlegt.
Íþróttaumfjöllun er líklega meðal ódýrasta fréttaefnis fjölmiðla í hlutfalli við
lestur, hlustun og áhorf. Stórir íþróttaviðburðir og umfjöllun um okkar fremsta
íþróttafólk er meðal vinsælasta efnis sem finnst í fjölmiðlum. Framhjá því
verður ekki litið að íþróttaumfjöllun er stór hluti af daglegri fjölmiðlaneyslu
mikils hluta þjóðarinnar, og hygg ég að fátt endurspegli jafn vel þverskurð
almennings í landinu og áhugi á íþróttafréttum.
Íþróttaiðkun og íþróttaumfjöllun verður ekki skilin undan endurreisn
samfélagsins úr rústum efnahagskreppu. Sérstaklega á það við um umfjöllun um
innlendar íþróttir og íslenskt íþróttafólk.
Ég hvet fjölmiðla til að endurskoða harkalegan niðurskurð íþróttaumfjöllunar.
Bæði er rétt að takmarka niðurskurð, og eins hvet ég fjölmiðla til að leita
annarra leiða til hagræðingar en uppsögn dyggra starfsmanna sem búa yfir
verðmætri sérþekkingu.
Niðurskurður fjölmiðla þarf að taka mið af hagsmunum neytenda.
Ólafur E. Rafnsson,
forseti ÍSÍ.
Áskorun framkvæmdastjórnar ÍSÍ
(Des. '08) Á Formannafundi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem
haldinn var í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, 28. nóvember sl. lýstu formenn
sérsambanda og héraðssambanda/íþróttabandalaga ÍSÍ yfir áhyggjum sínum með
uppsagnir íþróttafréttamanna á Ríkisútvarpinu sem kynntar voru þann dag. Af þeim
13 starfsmönnum sem sagt var upp á fréttasviði eru sex af íþróttadeild. Frá
þessu er grein á heimasíðu ÍSÍ.
Töldu fundarmenn að með þessum aðgerðum væri vegið harkalega að íþróttadeild
Ríkisútvarpsins og allri umfjöllun um íþróttir.
Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ 4. desember, var eftirfarandi áskorun
samþykkt:
„Framkvæmdastjórn ÍSÍ skorar á stjórn RÚV að sjá til þess að umfjöllun og
fréttaflutningur af íþróttum skerðist ekki, enda er umfjöllun um íþróttir
lögbundin skylda RÚV. Í gegnum árin hefur RÚV sinnt umfjöllun um íþróttir af
miklum metnaði og hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að miðla fréttum af
íþróttaviðburðum, innlendum sem erlendum. Sú ráðstöfun að segja upp fjórum af
sjö íþróttafréttamönnum ber ekki vott um að ætlunin sé að halda áfram á þeirri
braut. Telur framkvæmdastjórn ÍSÍ að með þeim aðgerðum og aðgerðum fyrr á þessu
ári sé vegið að íþróttahreyfingunni í landinu.”
Enn fækkar
(Nóv. '08)
Ríkissjónvarpið tilkynnti uppsagnir undir lok nóvembermánaðar. Niðurskurðurinn
kom hvað harkalegast niður á íþróttadeildinni en þar var sex manns sagt upp
störfum, þar á meðal þremur íþróttafréttamönnum, þeim Valtý Birni Valtýssyni,
Lovísu Árnadóttur og Ásgeiri Erlendssyni. Aðeins þrír íþróttafréttamenn eru því
eftir á RÚV. Þátturinn Sportið, sem hefur verið á mánudagskvöldum, verður svo
sleginn af eftir áramót. Jafnframt ríkir óvissa um beinar útsendingar á nýju
ári.
VIð þetta má bæta að Ómari
Þorgeirssyni var sagt upp á Fréttablaðinu. Alls hefur sjö íþróttafréttamönnum
verið sagt upp á skömmum tíma.
Kjör íþróttamanns ársins 2008
fer fram 2. janúar
(Nóv. 08) Kjör
íþróttamanns ársins 2008 verður haldið föstudaginn 2. janúar nk., að
vanda í samvinnu við ÍSÍ. Kjörið verður með hefðbundnu sniði en reynt að bæta
aðeins í sjónvarpsútsendinguna líkt og í fyrra. Að vanda fer kjörið fram á Grand
Hótel. Stefnt er að fundi íþróttafréttamanna til þess að undirbúa kjörið
þriðjudaginn 9. desember nk. kl. 12 í húsakynnum UMFÍ og eru
íþróttafréttamenn beðnir um að taka þá dagsetningu frá.
Fækkar í stéttinni
(Nóv. '08)
Breytingar hafa verið á högum nokkurra félaga í Samtökum íþróttafréttamanna að
undanförnu og ljóst að það hefur fækkað nokkuð í stéttinni í ár. Þorsteinn
Gunnarsson er hættur á Stöð 2 Sport eftir uppsagnarhrinu hjá 365 um síðustu
mánaðarmót. Albert Örn Eyþórsson er hættur á íþróttadeild Morgunblaðsins eftir
fjöldauppsagnir þar um síðustu mánaðarmót og þá var Snorra Sturlusyni sagt upp
hjá RÚV.
Hetjurnar okkar - sígild bók
(Okt. '08) Sem kunnugt er gáfu SÍ út bókina Hetjurnar okkar fyrir
síðustu jól þar sem fjallað er um íþróttamenn ársins frá upphafi, í tilefni 50
ára afmæli samtakanna. Þrátt fyrir mjög góða sölu eigum við til nokkuð á bókum
sem seldar verða á góðu verði nú fyrir jólin og geta áhugasamir haft samband við
jonkristjan@umfi.is. Hetjurnar okkur er
sígild bók sem á svo sannarlega heima í öllu betri hillum landsmanna.
Fundað um kjör íþróttamanns ársins
(Okt. '08) Formaður og gjaldkeri SÍ funduðu með framkvæmdastjóra og
verkefnastjóra ÍSÍ vegna kjörsins á íþróttamanni ársins 2008. Kjörið
verður með hefðbundnu sniði en reynt að leggja meira í sjónvarpsútsendinguna, í
beini framhaldi af því sem gert var í fyrra. Ákveðið var að hafa þema í kringum
kjörið, líkt og í fyrra en þá var það tengt Kína og fyrirhuguðum Ólympíuleikum.
Kjörinu verður lýst í lok desember að þessu sinni, annað hvort mánudaginn 29.
des. eða þriðjudaginn 30. des. en sjónvarpsstöðvarnar hafa lokaorðið um það.
Nýr yfirmaður íþróttadeildar RÚV
(Okt. '08) Enn eru breytingar hjá íþróttadeild Ríkisútvarpsins, sem
koma til vegna breytinga á fréttastofunni en íþróttadeildin hefur verið færð frá
dagskrárdeild og undir fréttastofu. Einn af aðstoðarfréttastjórunum hefur fengið
íþróttadeildina inn á sitt borð en það er Margrét Marteinsdóttir. Hún er því nýr
yfirmaður íþróttadeildar. Sama áhöfn verður undir stjórn nýja yfirmannsins.
Hætt við Krítarferð
(Okt. '08) Sumarskóli og haustfundur AIPS fer fram í lok október.
Formaður SÍ og ritari ætluðu á þingið en vegna breyttra aðstæðna og
hörmunga á fjármálamarkaði var ákveðið að hætta við ferðina. Rétt er að taka
fram að sjóður SÍ er tryggur á góðri bankabók.
Nýr íþróttafréttamaður á DV
(Okt.
'08) Breytingar urðu á íþróttadeild DV. Viðar Guðjónsson er hættur en
Sveinn Waage, sem hefur stýrt Golfblaðinu, er kominn í hans stað.
Formannafundur
í Reykjavík
(Sept. '08) Formenn
samtaka íþróttafréttamanna á Norðurlöndunum hittust í Reykjavík mánudaginn
22. september síðastliðinn. Þetta er þriðja árið í röð sem formennirnir
hittast en þar er farið yfir ýmis mál sem varða íþróttafréttamenn á
Norðurlöndum, einnig heimssamtökin (AIPS) og Evrópusamtökin (UEPS) og svo
Norðurlandaþingið sem er á næsta ári.
Til Íslands komu Reidar Sollie
frá Noregi, Esa Maaranen frá Finnlandi, Steen Ankerdal frá Danmörku en því
miður komst Bertil Guslen ekki frá Svíþjóð þar sem bókun hans fyrirfórst hjá
flugfélaginu. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna á
Íslandi stjórnaði fundinum, Jón Kristján Sigurðsson gjaldkeri SÍ var einnig
á fundinum ásamt Adolfi Inga Erlingssyni en fyrrverandi formönnum er einnig
boðið að vera með á heimavelli.
Gianno Merlo, forseti AIPS, sendi
meira
Dramatík á Opna sportpress.is mótinu í golfi
(Sept '08) Hið árlega golfmót Samtaka íþróttafréttamanna; "Opna
sportpress.is mótið", var haldið á Garðavelli á Akranesi, föstudaginn 12.
september. 12 íþróttafréttamenn voru skráðir til leiks, 11 mættu. Þegar
golfmótið var endurvakið í fyrra mættu 7 og því er um verulega fjölgun að ræða.
Til þess að fylla þrjú holl var brugðið á það ráð að fá gest, Skagamanninn
Alexander Högnason. Veður var með ágætum en óhætt er að segja að skipst hafi á
skin og skúrir á golfvellinum. Spilað var með Texas Scramble fyrirkomulagi og
varð niðurstaðan þessi eftir flókna forgjafaútreikninga:
.
6. sæti: Ómar og Sveinn Dagur, 94 högg
5. sæti: Henry og Albert, 82
4. sæti: Skúli Unnar og Þorsteinn, 80
3. sæti: Sigurður Elvar og Guðmundur Hilmars, 75
2. sæti: Hrafnkell og Valtýr, 74
1. sæti: Eiríkur Stefán og Alexander, 74
Þar sem tvö fyrstu pörin voru jöfn gilti sú gamla og góða regla ,,betra skor á
seinni 9" og þar höfðu Eiríkur Stefán og Alexander betur en Hrafnkell og Valtýr
Björn urðu að sætta sig við annað sætið. Eiríkur Stefán og Alexander fengu
vegleg verðlaun; gistinu á Grand Hótel, en þar sem Alexander var gestur í mótinu
ákvað formaður eftir mikla íhugun að Hrafnkell og Valtýr Björn fái einnig fyrstu
verðlaun, og verða þau afhent við fyrsta tækifæri.
Mótið
var frábær skemmtun en Sigurður Elvar Þórólfsson, formaður golfnefndar, hélt
utan um skipulagninguna. Er gaman að sjá hversu íþróttafréttamenn eru öflugir
kylfingar. Hrafnkell er t.d. einn högglengsti kylfingur landsins, Albert sá
kokhraustasti, Eiríkur Stefán sá fjörugasti og Formaðurinn sá best klæddi!
Sjáumst að ári.
Á myndinni eru sigurvegarnir Eiríkur Stefán og Alexander (gestaspilari) með
formanninn á milli sín.
Golfmótið er föstudaginn 12. september
(Sept. '08) Hið árlega golfmót Samtaka íþróttafréttamanna
,,Opna sportpress.is mótið" verður
haldið á Garðavelli á Akranesi, föstudaginn 12. september. Gjald: 0 kr.
Ræst út af 1. teig kl. 13, mæting kl. 12.45.
Eftir hringinn er boðið upp á mat og drykk. Veglegir vinningar.
Allir íþróttafréttamenn í SÍ hvattir til að mæta, sumarafleysingamenn og
fyrrverandi félagar í samtökunum einnig hjartanlega velkomnir. Látið póstinn því
endilega ganga til þeirra líka.
Vinsamlegast staðfestið þátttöku í síðasta lagi miðvikudaginn 10. september á
netfang formanns:
thorsteinn.gunnarsson@365.is
Mótið var endurvakið í fyrra eftir áratuga hvíld. Eftir flókna
forgjafaútreikninga stóðu Dagur á DV og Hjalti á Fréttablaðinu uppi sem
sigurvegarar.
Frábær frammistaða
(Ágúst '08) Handboltalandsliðið okkar náði stórkostlegum árangri á
Ólympíuleikunum í Peking og kom heim með silfrið.
Hlutverk íþróttafréttamanna á stórleikum sem þessum er að miðla heim því sem
gerist á leikunum, í gegnum sjónvarp, dagblöð, netið og útvarp.
Íþróttafréttamennirnir sem voru á vettvangi í Pekíng sýndu það og sönnuðu og
þeir eru frábærir fagmenn og voru stétt sinni til mikils sóma.
Hvort sem voru lýsingar, viðtöl, skrif í dagblöð eða á netið, þá skilaði það sér
á eftirtektarverðan hátt til landsmanna sem nutu góðs af margra ára reynslu
þeirra íþróttafréttamanna sem voru á vettvangi.
Um leið og handboltalandsliðinu er óskað til hamingju með stórkostlegan árangur,
ber svo sannarlega að halda því til haga að íþróttafréttamennirnir voru einnig
okkar sómi, sverð og skjöldur og eru alltaf bestir undir pressu!.
Þá sannaðist enn og aftur hversu mikilvægt það er fyrir fjölmiðla sem vilja láta
taka sig alvarlega að senda íþróttafréttamenn á vettvang á stórmótum því
nálgunin verður mun persónulegri og skemmtilegri. Áfram Ísland!
Íþróttafréttamenn í doktorsritgerð
(Ágúst '08) Guðmundur Sæmundsson hefur ákveðið að skrifa
doktorsritgerð um málfar íþróttafréttamanna og íþróttamanna. Ætlar hann að
einbeita sér að tveimur íþróttagreinum; fótbolta og frjálsum.
Guðmundur sagði í viðtali við morgunútvarp Rásar 2 að málfar íþróttafréttamanna
hafi mjög mótandi áhrif á málfar íþróttamannanna sjálfra. Íþróttafréttamenn séu
stýrandi í umræðunni og segir Guðmundur að Bjarni Felixson sé sitt helsta
uppáhald hvað þetta varðar.
Guðmundur sagði íþróttafréttamenn duglega í myndlíkingum af vellinum. Þegar menn
æsa sig losni svo um margar hömlur og tekst stundum að gera ótrúlegastu hluti
spennandi. Málfarið hefur þróast að sögn Guðmundar en alls ekki hrakað og
lýsingarnar hafa batnað.
Ritgerðin mun heita "Það er næsta víst" og þar er að sjálfsögðu vísað beint í
Bjarna Fel!
Vösk
sveit íþróttafréttamanna á Ólympíuleikunum
(Ágúst '08) Ólympíuleikarnir voru settir í dag með pompi og pragt
í Pekíng í Kína.
RÚV
hefur sýningarréttinn og sendir út þrjá íþróttafréttamenn; Adolf Inga
Erlingsson, Hrafnkel Kristjánsson og Samúel Örn Erlingsson sem var kallaður
sérstaklega í þetta verkefni. Morgunblaðið sendir Sigurð Elvar Þorólfsson. Fyrir
hönd Fréttablaðsins fer Henry Birgir Gunnarsson en Stöð 2 og DV senda engan
fulltrúa á leikana, sem er miður.
Alls eru 27 íslenskir íþróttamenn á ÓL að þessu sinni sem Kínverjar segja að
verði þeir glæsilegustu frá upphafi.
Meistaradeildin áfram á
Stöð 2 Sport
(Ágúst ´08) Stöð 2 Sport hefur tryggt sér áframhaldandi
sýningarrétt á Meistaradeild Evrópu og UEFA-bikarnum til ársins 2012. Þetta er
tilkynnt á heimasíðu UEFA.
Stöð 2 Sport mun halda áfram að sinna Meistaradeildinni og sýnir átta leiki í
viku meðan riðlakeppnin fer fram. Þegar úrslitakeppnin hefst verða allir leikir
sýndir.
Á heimasíðu UEFA er sagt að virkileg ánægja sé með þessa samninga enda hafi
samstarfið við 365 miðla verið gott gegnum árin.
Fjölmiðlar hafa aðgang að þjálfurum og leikmönnum strax eftir leik
(Júlí '08) Mikils misskilnings virðist gæta hjá félögum í
Landsbankadeildinni sem og Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands varðandi aðgang
fjölmiðla að þjálfurum og leikmönnum eftir leiki í Landsbankadeild karla.
Sum félög og KÞÍ hafa fullyrt að fjölmiðlar, sem eru að keppast við klukkuna að
klára umfjöllun um leiki, þurfi að bíða í 10 mínútur eftir að flautað er til
leiksloka áður en þeir fá viðtöl. Þetta er kolrangt og ættu félögin í
Landsbankadeildinni að vita betur því skýrt er kveðið á um þetta í handbók KSÍ
sem fylgir Leyfiskerfinu.
Orðrétt segir í Leyfiskerfinu:
,,Að öllu jöfnu ættu leikmenn og þjálfarar að vera klárir í viðtöl eigi síðar
en 10 mínútum eftir að leik lýkur."
Með öðrum orðum: Leikmenn og þjálfarar eiga að vera klárir í viðtöl STRAX EFTIR
LEIK.
SÍ
hafa gert athugasemd við þennan misskilning félaganna til KSÍ.
Magnað heimsþing AIPS í Pekíng

(Júní '08) AIPS,
Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, héldu sitt árlega þing, að þessu sinni í
Pekíng, höfuðborg Kína, 21. - 24. maí sl. Formaður SÍ, Þorsteinn Gunnarsson, og
gjaldkeri samtakanna, Jón Kristján Sigurðsson, sóttu þingið. Til Pekíng komu
fulltrúar frá u.þ.b. 100 löndum en þetta var 71. heimsþing AIPS.
Að vanda voru ýmis hagsmunamál íþróttafréttamanna um alla heim rædd. En þingið
bar þess merki að Ólympíuleikar eru fram undan í Pekíng. Forystumenn kínversku-
og Alþjóða Ólympíuhreyfingarinnar ávörpuðu þingið en í þeirra máli kom fram að
lykillinn að vel heppnuðum Ólympíuleikum sé góð þjónusta við fjölmiðla og
starfsfólk þeirra þannig að leikarnir skili sér heim í stofu heimsbyggðarinnar á
sem áhrifamestan hátt.
Fram kom í máli formanns kínversku Ólympíunefndarinnar að það sé ekkert einsdæmi
að land eins og Kína nýti sér Ólympíuleika í einhvers konar áróðursskyni. Hvert
einasta land sem haldi slíka leika nota þá til þess að auglýsa ágæti sitt og
markaðssetja sem ferðamannaland í framtíðinni.
Farið var í skoðunarferð um Ólympíuþorpið meira
Undarlegur leiktími
(Júní '08) Fylkir og Grindavík mætast í Landsbankadeild karla
miðvikudaginn 25. júní, kl. 21.00. Kemur það til vegna þess að þennan
sama dag eru undanúrslit á EM og þetta eini leikdagurinn sem hentar Fylki vegna
þátttöku í Getraunakeppni Evrópu. Leiktíminn hentar hins vegar íslensku
fjölmiðlaumhverfi afar illa og hafði formaður SÍ samband við KSÍ. Sú hugmynd var
uppi á borði að hafa leikinn kl. 17 en niðurstaðan varð önnur. KSÍ er hins vegar
að skoða þetta mál betur eftir erindi SÍ.
Starfshópur um ábyrga framkomu aðila innan vébanda KSÍ í fjölmiðlum
(Júní '08) Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum 12. júní að skipa
starfshóp til þess að fjalla um ábyrga framkomu aðila innan vébanda KSÍ í
fjölmiðlum. Starfshópnum er ætlað að kynna sér stöðu þessara mála í
nágrannalöndum með það í huga hvort setja beri reglur um viðtöl, breyta beri
refsiramma o.fl.
Í starfshópnum sitja Lúðvík S Georgsson, varaformaður KSÍ og formaður
mótanefndar, Þórarinn Gunnarson formaður dómaranefndar, Stefán Geir Þórisson
formaður laga- og leikreglnanefndar og Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ, að
því er segir á heimasíðu KSÍ.
Við þetta má bæta að formaður Samtaka íþróttafréttamanna ræddi við Geir
Þorsteinsson, formann KSÍ, og óskaði eftir því að samtökin kæmu að málinu ef
semja eigi reglur um viðtöl og tók Geir því vel.
Breytingar
á Morgunblaðinu
(Maí '08) Óvæntar breytingar urðu á íþróttadeild Morgunblaðsins
þegar gerður var starfsloksamningur við Sigmund O. Steinarsson, íþróttaritstjóra
blaðsins. Sigmundur (sjá mynd) hefur unnið sem íþróttafréttamaður á
Morgunblaðinu í yfir tvo áratugi og sem ritstjóri í rúman áratug. Sigmundur er
elsti og reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Í hans stað hafa Víðir
Sigurðsson og Sigurður Elvar Þórólfsson verið ráðnir sem íþróttaritstjórar
Morgunblaðsins en þeir hafa starfað þar sem íþróttafréttamenn undanfarin ár.
Víðir er með reyndustu íþróttafréttamönnum landsins
.
Viðmót og vilji til
fyrirmyndar
(Maí '08) Eins og fram kemur hér fyrir neðan er aðstaða fyrir
íþróttafréttamenn á nokkrum völlum ekki eins og best verður á kosið. Sérstaklega
skal Kaplakrikavöllur nefndur sem og Valbjarnarvöllur en bráðabirgðaaðstaða er á
báðum stöðum. Því ber að halda til haga að forráðamenn félaganna eiga hrós
skilið fyrir viðtökur og viðmót þegar leitað hefur verið eftir lagfæringu á
aðstöðu íþróttafréttamanna á leikjum og hefur það nánast undantekningalaust
verið til mikillar fyrirmyndar. Vonandi rætist úr bráðabirgðaaðstöðu á
fyrrnefndum völlum sem fyrst.

Aðstaða á að
minnsta kosti þremur völlum áhyggjuefni
(Maí '08)
Stjórn Samtaka
íþróttafréttamanna hefur tekið púlsinn á þeim þremur völlum í
Landsbankadeildinni í sumar sem forráðamenn KSÍ og samtakanna hafa hvað mestar
áhyggjur af hvað varðar aðstöðu fyrir íþróttafréttamenn (og myndatökumenn) á
leikjum í sumar, að því er fram kom á fundi með KSÍ.
Stjórn SÍ hefur heimsótt Kaplakrikavöll, Fjölnisvöll og Valbjarnarvöll í
Laugardal.
Vegna framkvæmda á Kaplakrikavelli er ljóst að íþróttafréttamenn búa við
bráðabirgðaaðstöðu í gámi sem er alls ekki ásættanleg. Framkvæmdastjóri FH lofar
að aðstaðan verði þokkaleg á fyrsta leik.
Á
Fjölnisvelli eru framkvæmdir ekki hafnar við að byggja yfir svalir sem eru
hugsaðar fyrir íþróttafréttamenn að störfum en að sögn Fjölnismanna lofa þeir að
allt verði klárt í fyrsta leik gegn KR. Vonandi gengur það eftir.
Á
Valbjarnarvelli er notast við gamla gáminn á Valsvelli sem er mörkum þess að
vera boðlegur. Þróttarar lofa því að lagfæra aðstöðuna en ljóst að hún verður
ekki nógu góð Þá er aðstaða á Fylkisvelli sem fyrr afar slæm, svo
eitthvað sé nefnt.
Það breytist ekkert að rúmum 50 árum eftir stofnun Samtaka íþróttafréttamanna er
okkar helsta baráttumál bætt vinnuaðstaða á íþróttaviðburðum.
Myndin er af
Fjölnisvelli (www.fjolnir.is)
Ferðastyrkur
til fréttaöflunar fyrir íþróttafréttamenn
(Maí '08) Formaður SÍ og framkvæmdastjóri Íslenskra getrauna hafa
komist að samkomulagi um að Íslenskar getraunir styrki einn íþróttafréttamenn
til þess að fara til útlanda í fréttaöflunarferð þar sem fjallað verður íþróttir
sem tengjast Íslandi á einhvern hátt. Gengið verður formlega frá samningum á
næstunni en búist er við að einn íþróttafréttamaður verði styrktur á ári en
samningurinn er til þriggja ára. Reglugerðin sem fylgir samkomulaginu verður
kynnt síðar sem og samningurinn sjálfur sem hefur verið nokkuð lengi í bígerð.

Gagnlegt Stefnumót við KSÍ
(Maí '08) Samtök íþróttafréttamanna buðu KSÍ á stefnumót þann 5.
maí. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ og Ómar Smárason, leyfisstjóri KSÍ,
mættu fyrir hönd KSÍ en Geir Þorsteinsson formaður forfallaðist á síðustu
stundu.
Þórir fór yfir knattspyrnusumarið og í kjölfarið voru fyrirspurnir.
Íþróttafréttamann hafa töluverðar áhyggjur af aðstöðuleysi á sumum völlum í
Landsbankadeildinni í sumar, sérstaklega hjá nýliðum Fjölnis og Þróttar sem og
hjá FH en þar eru miklar framkvæmdir í gangi á vallarsvæðinu. Auk þess er
aðstaða á Fylkisvelli afar slæm. Íþróttafréttamenn hafa lengi barist fyrir
bættri aðstöðu til þess að geta sinnt starfi sínu sómasamlega, sem og
myndatökumenn fyrir sjónvarpsstöðvarnar en aðstaða þeirra hefur einnig verið
bágborin á sumum völlum.
Þórir og Ómar tóku ábendingum vel um það sem betur mætti fara og verður því
komið á framfæri við félögin. Jafnframt munu SÍ og KSÍ senda í sameiningu frá
sér GÁTLISTA til félaganna, líkt og SÍ gerði í fyrra, til þess að auðvelda
félögunum undirbúninginn fyrir sumarið.
SÍ þakkar KSÍ fyrir gagnlegt stefnumót.
Á myndinni eru
Þórir Hákonarson, framkvæmdstjóri KSÍ (sitjandi) og Ómar Smárason, leyfis- og
markaðsstjóri KSÍ, á fundinum með íþróttafréttamönnum.
Breytingar
hjá DV
(Maí '08) DV hyggst leggja niður íþróttakálf sinn sem fylgt hefur
blaðinu undanfarin misseri en þar hafa þrír íþróttafréttamenn unnið í fullu
starfi og haldið úti myndarlegu blaði. Í staðinn verða tveir íþróttafréttamenn
færðir yfir á dv.is og sjá þar um íþróttaskrif og einn fer yfir í almennar
fréttir. Verður mikil eftirsjá í íþróttakálfi DV, ekki síst um helgar þar sem
mátti lesa mörg skemmtileg og ítarleg viðtöl við íþróttafólk - og jafnvel
íþróttafréttamenn. Einnig var ítarleg umfjöllun um enska boltann á mánudögum sem
var geysi vinsæl. DV verður ekki samt eftir þessar breytingar.
Ljósmyndir
óskast!
(Apríl '08) Þeir félagar í Samtökum íþróttafréttamanna sem vilja
hafa mynd af sér í AIPS skírteini, eru vinsamlegast beðnir um að senda til
formanns sem allra fyrst. Netfangið er
thorsteinn.gunnarsson@365.is.
Félagar eru
hvattir til að senda mynd því skírteinið er óneitanlega trúverðugra með fallegri
brosmynd.
Stefnumót KSÍ
mánudaginn 5. maí
(Apríl '08) Formaður og framkvæmdastjóri KSÍ ætla að hitta félaga
í Samtökum íþróttafréttamanna mánudaginn 5. maí nk. kl. 17 í höfuðstöðvum KSÍ.
Þeir munu flytja framsögu um knattspyrnusumarið og svara svo spurningum
félagsmanna. Matur og veitingar á boðstólum. Félagar í SÍ hvattir til að
fjölmenna svo við fáum líflega og skemmtilega umræðu.
Frestun á
Stefnumóti við KSÍ
(Apríl '08) Því miður verður að fresta Stefnumóti við KSÍ sem
fyrirhugað var á föstudaginn, 25. apríl. Unnið er að því að finna nýja
dagsetningu.
Henry Birgir tekur við af
Valtý Birni
(Apríl '08) Henry Birgir Gunnarsson, fréttastjóri íþróttadeildar
Fréttablaðsins, mun frá með 2. maí vera með útvarpsþátt á Xinu 977 frá kl.
12-13. Kemur hann í staðinn fyrir Valtýr Björn Valtýsson sem hefur flutt sig
yfir á RÚV.
Valtýr
Björn á RÚV
(Mars '08)
Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður mun færa sig um set innan
skamms og hefja störf sem íþróttafréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu. Valtýr Björn
hefur lengst af starfað hjá 365-miðlum, bæði í sjónvarpi og útvarpi, nú síðast
sem dagskrárgerðamaður á útvarpssviði.
Óánægja með
leiktíma í N1 deild karla
(Mars '08)
Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna sendi í dag, 11. mars, eftirfarandi
bréf til HSÍ:
Stjórn
Samtaka íþróttafréttamanna hefur fundið fyrir megnri óánægju á meðal félagsmanna
með leiktíma í N1 deild karla. Sífellt fleiri lið hafa fært leiki sína frá kl.
19.15 til 20 og nk. fimmtudag er viðureign Fram og Vals kl. 20.30.
Að hafa leikina svona seint að kvöldi gerir fjölmiðlum ákaflega erfitt fyrir að
fjalla um leikina, hvort sem um prent- eða ljósvakamiðla er að ræða. Í
knattspyrnunni og körfuboltanum er megin reglan sú að hafa leikina kl. 19.15 sem
er sá tími sem hentar íslensku fjölmiðlaumhverfi hvað best, og í raun ekki síður
íslenskum áhorfendum og gerir íþróttina fjölskylduvænni fyrir vikið.
Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna skorar á HSÍ að breyta leiktímum þannig í N1
deild karla að allir leikir hefjist kl. 19.15.
Með vinsemd og virðingu,
F.h. stjórnar Samtaka íþróttafréttamanna
Þorsteinn Gunnarsson, formaður
Stefnumót
við KSÍ
föstudaginn
25. apríl
(Mars '08) Stjórn SÍ hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum að fara á
stefnumót við aðila innan íþróttahreyfingarinnar amk. einu sinni á önn.
Við hæfi er að byrja á stærsta sérsambandinu, KSÍ. Formaður og framkvæmdastjóri
KSÍ hafa samþykkt að eiga stefnumót við SÍ föstudaginn 25. apríl (ATH! Breyting
- er viku síðar en áður auglýst) kl. 20,
fundarsalur auglýstur síðar. Þar mun KSÍ kynna fótboltasumarið 2008 og svara
spurningum sem brenna á íþróttafréttamönnum þessa dagana og er væntanlega af
nógu að taka, eins og t.d. varðandi aðstöðu á Laugardalsvelli o.fl. Vonandi mæta
sem flestir félagsmenn SÍ á þetta stefnumót. Nánar síðar.
Aðalfundur SÍ
fyrir árið 2007
(Feb. '08) Aðalfundur
SÍ fyrir árið 2007 var haldinn 28. febrúar. Virkilega góð mæting var á fundinn
en alls mætti 21 félagi af 29. Tveir nýir félagar gengu í samtökin, Snorri
Sturluson af RÚV og Tómas Þór Þórðarson af DV.
Þorsteinn Gunnarsson, formaður SÍ, flutti skýrslu stjórnar en síðasta ár var
ansi viðburðarríkt. Hæst bar að sjálfsögðu kjörið á íþróttamanni ársins en SÍ
stóð fyrir því þrekvirki að gefa út bókina Hetjurnar okkar - saga íþróttamanns
ársins í 50 ár. Að ýmsum öðrum málum má nefna baráttu fyrir bættri aðstöðu
íþróttafréttamanna á Laugardalsvelli og fleiri leikvöngum, samskiptum við KSÍ,
Norðurlandaþingi og AIPS þingi, ráðstefnuna Play the game, svo eitthvað sé
nefnt.
Jón Kristján Sigurðsson gjaldkeri lagði fram ársreikninga. Hagnaður síðasta árs
var um 890 þúsund krónur en rekstrartekjur voru um 2,2 milljónir en umfangið í
fyrra var óvenju mikið vegna bókaútgáfunnar.
Ein breytingatillaga um reglugerð á íþróttamanni ársins lá fyrir fundinum þess
efnis að kjörið væri ekki leynilegt en hún var felld eftir nokkrar umræður.
Stjórn SÍ var endurkjörin. Þorsteinn Gunnarsson verður áfram formaður, Jón
Kristján Sigurðsson gjaldkeri og Guðmundur Hilmarsson ritari. Í varastjórn
eru Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Viðar Guðjónsson.
Undir liðnum önnur mál bar ýmislegt á góma en framundan er skemmtilegt
íþróttaár.
Aðalfundur SÍ
í fundarsal UMFÍ
(Febr. ´08) Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna fyrir árið 2007
verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar nk. kl. 14 (klukkan tvö) í fundarsal
UMFÍ við Laugarveg. Fundarsalurinn er á þriðju hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum félagsins.

Our Heroes
(Febr. 08) Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, AIPS, gefa út tímarit
fjórum sinnum á ári. Það er sent til félagsmanna um allan heim. SÍ hafa sent
pistla í þetta ágæta tímarit undanfarin misseri. Í nýjasta tímaritinu, því
fjórða og síðasta sem kom út í lok síðasta árs en barst félagsmönnum í febrúar,
er pistill um bókina góðu, Hetjurnar okkar, eða 'Our Heroes' eins og hún er
nefnd upp á enska tungu en pistillinn er undir fyrirsögninni 'Sports heroes?
Einnig
er hægt að nálgast tímaritið á heimasíðu AIPS:
http://www.aipsmedia.com/downloadpdf.php?PHPSESSID=fdb3021b86b989669db1957378386443&issue=2007,4
Aðalfundur SÍ
fimmtudaginn 28. febrúar
(Febr. ´08) Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna fyrir árið 2007
verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar nk. kl. 14 (klukkan tvö). Fundarstaður
auglýstur síðar.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum félagsins:
I. Inntaka nýrra félaga
II. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
III. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram.
IV. Lagabreytingar.
V. Stjórnarkosning.
VI. Árgjald félagsmanna.
VII. Önnur mál.
VIII. Fundargerð lesin upp, fundarslit.
Félagar skrái sig á heimasíðu AIPS
(Jan. 08) Athygli er vakin á því að Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna,
AIPS, eru loksins komin með netskráningu. Félagar í SÍ er hvattir til að fara
inn á heimasíðu AIPS, www.aipsmedia.com,
til að skrá sig til að fá sent AIPS kort fyrir næstu tvö árin.
Hægra
megin á heimasíðunni er hnappur merktur AIPS CARD og þið skráið inn AIPS
kortanúmerið ykkar og fæðingardag og uppfærið upplýsingarnar. Endilega sendið
mynd af ykkur líka.
Þeir
sem eru nýir (eða hafa týnt kortinu sínu) smelli neðst á GET A NEW CARD. Félagar
í SÍ eru vinsamlegast beðnir að skrá sig sem allra fyrst.
Geir hættir -
Snorri tekur við
(Jan. 08) Geir Magnússon lætur af störfum um mánaðarmótin sem
íþróttafréttamaður hjá RÚV. Geir hefur starfað þar síðan sumarið 1997 en hann
hefur starfað í faginu í um 15 ár en hann var áður hjá Stöð 2 og Sýn. Staðfest
er að Snorri Sturluson hefur verið ráðinn í stað Geirs. Snorri er að góðu kunnur
sem íþróttafréttamaður á Sýn og Stöð 2 á sínum tíma, auk fleiri fjölmiðla. Nú
síðast starfaði hann sem ráðgjafi hjá KOM-almannatengslum.
Federer
bestur þriðja árið í röð

(Jan. '08)
Svissneski tenniskappinn Roger Federer hefur verið kjörinn besti
íþróttamaður heims af Alþjóðasamtökum íþróttafréttamanna (AIPS) og er þetta
þriðja árið í röð sem hann er kjörinn.
Besta íþróttakona heims að mati AIPS er belgíska tenniskonan Justine Henin og AC
Milan er besta lið ársins. Alls eru það íþróttafréttamenn frá 94 löndum sem þátt
taka í kjörinu.
Knattspyrnukappinn Kaká hjá AC Milan varð í öðru sæti á eftir Federer og hinn
sprettharði Asafa Powell frá Jamaíku varð þriðji.
Hjá konunum komu tvær frjálsíþróttakonur á eftir Henin. Sænska sjöþrautarkonan
Carolina Klüft varð önnur og Blaka Vlasic frá Króatíu þriðja. (mbl.is)
Margrét Lára
kjörin íþróttamaður ársins 2007
(Des.
'07) Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val var útnefnd íþróttamaður ársins
2007 af Samtökum íþróttafréttamanna. Hún er fjórða konan sem hlýtur þessa
vegsemd í 52 ára sögu kjörsins og sjötti knattspyrnumaðurinn sem hreppir þennan
eftirsóttasta titil í íslensku íþróttalífi.
„Ólafur
Stefánsson, handknattleiksmaður, varð annar í kjörinu og
Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona, hafnaði í þriðja
sæti.
Margrét
Lára er 21 árs gömul, fædd og uppalin í Vestmannaeyjum
þar sem hún lék með meistaraflokki ÍBV frá 14 ára aldri,
en hún hefur spilað með Val undanfarin þrjú ár. Hún átti
glæsilegt tímabil með Val og íslenska landsliðinu 2007
en hún skoraði samtals 72 mörk í mótsleikjum á árinu.
Þar af gerði hún 38 mörk á Íslandsmótinu þar sem hún
bætti eigið markamet og varð Íslandsmeistari með Val
annað árið í röð.
Þá gerði
hún 8 mörk fyrir A-landsliðið, í níu leikjum, og setti
nýtt markamet en hún hefur nú samtals gert 29 mörk í 35
A-landsleikjum. Þar af skoraði hún í sigurleikjum
Íslands gegn tveimur af tíu bestu landsliðum heims,
Frakklandi og Kína. Hún er í lykilhlutverki í landsliði
Íslands sem stendur vel að vígi í baráttu um sæti í
úrslitakeppni Evrópumótsins í Finnlandi árið 2009.
Enn fremur
skoraði Margrét Lára 8 mörk í 6 leikjum með Val í
Evrópukeppni meistaraliða í haust en þar komst
Hlíðarendafélagið í 16 liða úrslit og var hársbreidd frá
því að fara enn lengra.
Sigríður
Sigurðardóttir handknattleikskona varð fyrst kvenna til
að vera kjörin íþróttamaður ársins en það var árið 1964.
Næst var Ragnheiður Runólfsdóttir, sundkona, sem var
kjörin árið 1991, þá kom Vala Flosadóttir,
frjálsíþróttakona, árið 2000, og Margrét Lára er sú
fjórða.
Þeir fimm
knattspyrnumenn sem hafa hreppt titilinn á undan
Margréti Láru eru Guðni Kjartansson (1973), Ásgeir
Sigurvinsson (1974 og 1984), Jóhannes Eðvaldsson (1975),
Arnór Guðjohnsen (1987) og Eiður Smári Guðjohnsen (2004
og 2005). (samantekt: mbl.is).
Tíu efstu í
kjöri íþróttamanns ársins 2007
(24. des.
'07) Atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins
2007 hafa verið talin og liggur ljóst fyrir hvaða tíu íþróttamenn urðu í efstu
sætum í kjörinu.
Nöfn þeirra í stafrófsröð eru:
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG
Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður hjá Barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson handknattleiksmaður hjá Gummersbach
Jón Arnór Stefánsson körfuknattleikismaður hjá Lottomatica Roma
Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona hjá Val
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður hjá Ciudad Real
Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona úr TBR
Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona úr KR
Snorri Steinn Guðjónsson handknattleiksmaður úr GOG
Örn Arnarson sundmaður úr SH
29 félagsmenn eru í Samtökum íþróttafréttamanna og nýttu allir þeirra
atkvæðisrétt sinn í kjörinu að þessu sinni. Atkvæðagreiðslan er leynileg og fer
þannig fram að hver félagsmaður SÍ setur saman lista með nöfnum tíu íþróttamanna
sem honum þykja hafa skarað fram úr á árinu.
Helstu styrktaraðilar Samtaka íþróttafréttamanna vegna kjörsins eru Glitnir og
Icelandair.
Kjörinu verður lýst á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 28. desember klukkan
19.35 og eins og undanfarin ár verður það sent út í sameiginlegri beinni
útsendingu á RÚV og Sýn.
Áður en kjöri íþróttamanns ársins verður lýst mun ÍSÍ afhenda viðurkenningar til
þeirra íþróttakarla og -kvenna hjá sérsamböndum sínum sem þótt hafa skarað fram
úr á árinu 2007. Þetta verður í þrettánda sinn sem Samtök íþróttafréttamanna og
ÍSÍ standa að sameiginlegri hátíð sem nær hápunkti þegar Íþróttamaður ársins
2007 verður útnefndur.
Samtök
íþróttafréttamanna óska landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Kjörið á
íþróttamanni ársins 28. desember
(Des. '07)
Kjörið á íþróttamanni ársins 2007 fer fram föstudaginn 28. desember nk. Að vanda
verður það í samstarfi við ÍSÍ. Bein útsending í Ríkissjónvarpinu og á Sýn hefst
kl. 19.35. Nöfn þeirra tíu stigahæstu í kjörinu verða birt á aðfangadag, 24.
desember. Nánari upplýsingar síðar.
Met fjöldi
félaga í SÍ = 29
(Des. '07)
Á félagsfundi SÍ 14. des. sl. fjölgaði um nokkra íþróttafréttamenn. Alls
eru 29 íþróttafréttamenn (í fullu starfi) meðlimir í Samtökum íþróttafréttamanna
og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þá er einn svokallaður aukameðlimur. Nokkur
stöðugildi hafa bæst við, aðallega hjá 365-miðlum. Er ánægjulegt til þess að
vita að fjölmiðlar eru farnir að átta sig á mikilvægi þess að ráða fagmenn í
fullt starf á sínum miðlum þegar kemur að því að fjalla um íþróttir.
Hetjurnar
okkar í Bónus, Hagkaupum og Office 1

(Des. '07)
Bókin Hetjurnar okkar - íþróttamenn ársins í hálfa öld, sem Samtök
íþróttafréttamanna gefa út, er til sölu í verslunum Bónus, Haugkaupa og Office
1. Á landsbyggðinni er hægt að kaupa bókina í verslunum Office 1
(Vestmannaeyjar, Ísafjörður, Akureyri og Egilsstaðir). Þeir sem vilja panta
eintak geta líka sent tölvupóst á netfangið mariner@internet.is
Menntamálaráðherra fékk fyrsta
eintakið

(13. des. '07) Í
dag héldu Samtök íþróttafréttamanna fréttamannafund í höfuðstöðvum ÍSÍ. Tilefnið
var útgáfa bókarinnar Hetjurnar okkar - íþróttamenn ársins í hálfa öld.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
mennta- og íþróttamálaráðherra, tók við fyrsta eintakinu af bókinni úr hendi
höfundarins, Hallgríms Indriðasonar. Þorgerður Katrín flutti ávarp þar sem hún
hvatti íþróttafréttamenn að gæta vel kjörsins um íþróttamann ársins.
Hallgrímur las einnig upp úr bókinni kaflann um Guðmund Hermannsson, íþróttamann
ársins 1967.
Nokkrir af íþróttamönnum ársins mættu af þessu tilefni og fengu þeir afhentar
bækur. Þá heiðruðu SÍ Stefán Konráðsson, fyrrum framkvæmdastjóra ÍSÍ, með
gullmerki samtakanna fyrir einstakt
meira
HETJURNAR
OKKAR kemur út þriðjudaginn 11. desember
(Des. 07) Bókin HETJURNAR OKKAR - ÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS Í HÁLFA ÖLD,
eftir Hallgrím Indriðason sem Samtök íþróttafréttamanna gefa út, fer í dreifingu
þriðjudaginn 11. desember. Nokkur töf varð í prentun en við því er lítið að
gera. Gríðarlegur áhugi er fyrir þessari mögnuðu bók og hafa þegar verið pöntuð
200 eintök fyrirfram.
Samtök íþróttafréttamanna blása til fréttamannafundur fimmtudaginn 13.
desember kl. 12 þar sem bókin verður kynnt með pompi og pragt. Í beinu framhaldi
af fréttamannafundinum verður fundur í SÍ um kjör íþróttamanns ársins 2007.
Formannafundur
í Osló
(Nóv. 07) Þriðjudaginn 27. nóvember var haldinn árlegur
formannafundur hjá samtökum íþróttafréttamanna á Norðurlöndunum, að þessu sinni
í Osló. Formenn Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands mættu til
þess að bera saman bækur sínar og fara yfir ýmis málefni sem snúa að
íþróttafréttamönnum á Norðurlöndunum.
Hvert og og eitt land fór yfir starfsemi í sínu félagi og þau ýmsu mál sem þarf
að takast á við í dagsins önn og var ótrúlegt hversu svipuð mál koma upp á
borðið. Á öllum Norðurlöndunum er þetta sífelld barátta um bættari og betri
aðstöðu fyrir íþróttafréttamenn í stærstu greinunum. Öll samtökin, nema þau
dönsku, standa fyrir vali á íþróttamanni ársins. Dönsku samtökin
meira
Dagur Sveinn
til KSÍ

(Nóv. '07)
Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Dag Svein Dagbjartsson sem starfsmann í
fræðslumál. Dagur hefur lokið B.S. gráðu í íþróttafræðum frá KHÍ Laugarvatni og
á að baki 12 landsleiki fyrir U-17 ára landslið Íslands. Dagur Sveinn hefur að
auki starfað sem íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og á DV. Hann mun hefja
störf fyrir KSÍ þann 1.janúar 2008.
Dagur Sveinn mun verða Sigurði Ragnari Eyjólfssyni fræðslustjóra KSÍ til
aðstoðar og mun fræðslustarf KSÍ eflast enn frekar fyrir vikið, samkvæmt
heimasíðu KSÍ.
Nokkrar íþróttabækur í
jólaflóðinu
(Nóv. 07) Nokkrar
íþróttabækur eru gefnar út fyrir þessi jól sem vert er að gefa gaum og sagt er
frá í Bókatíðindum:
Hæst ber bókin HETJURNAR OKKAR - ÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS Í HÁLFA ÖLD, sem
Samtök íþróttafréttamanna gefa út. Mjög er vandað til verka í þessari bók sem er
einstök heimild um þetta afreksíþróttafólk. Nánar um þessa bók síðar sem fer í
prentun nú í vikunni og verður kynnt með pompi og pragt. Höfundur er Hallgrímur
Indriðason.
ÍSLENSK KNATTSPYRNA eftir Víði Sigurðsson íþróttafréttamann er auðvitað
Biblía allra knattspyrnuáhugamanna á Íslandi og ómissandi um hver jól til að
rifja knattspyrnuárið upp. Ómetanleg heimild.
SÁ BESTI fjallar um Cristiano Ronaldo meira
Evrópusamtökin opna skrifstofu í Brüssel
(Nóv. 07) Evrópusamtök íþróttafréttamanna, UEPS, fengu
skrifstofuaðstöðu í nýjum húsakynnum hjá Samtökum íþróttafréttamanna í Brüssel
nú í byrjun nóvember. UEPS er þar ekki með fastan starfsmann en ákveðið var á
mjög umdeildu þingi í vor (sem var hluti af heimsþingi AIPS) að færa aðsetur
samtakanna til Brüssel til að geta skráð samtökin formlega innan
Evrópusambandsins og gert þau sýnilegri og fengið öll tilskilin réttindi. Sjá
nánar á heimasíðu samtakanna:
www.ueps-media.com
Vel
heppnuð ráðstefna
(Okt. 07)
Ráðstefnunni Spilum
leikinn, eða Play the game, lauk í kvöld á Grandhótel með glæsilegu hlaðborði.
Óhætt er að segja að ráðstefnan hafi takist í alla staði mjög vel, haldin voru
mörg athyglisverð erindi um dekkri hliðar íþróttanna og má í því sambandi nefna
lyfjanotkun í íþróttum, ýmis spillingamál, fjárhagsvandræði enska boltans o.fl.
Gestir á ráðstefnunni komu frá 50 löndum.
Heiðursverðlaun Play the game að þessu sinni fékk Sandro Donati frá Ítalíu en
hann hefur verið í fararbroddi þar í landi að berjast gegn lyfjamisnotkun í
íþróttum.
UMFÍ var gestgjafi ráðstefnunnar og var öll umgjörð til sóma. Nánar er hægt að
fræðast um hin ýmsu erindi og umræður ráðstefnunnar á heimasíðu hennar;
playthegame.org
PLAY THE GAME HEFST Á
SUNNUDAGINN
(Okt.
'07) Ráðstefnan Play the game hefst á sunnudaginn, 28. október, og því
fer hver að verða síðastu að skrá sig.
Ég vil endilega hvetja ykkur til að skoða það sem er á boðstólum. Hér er
samantekt á því:
http://www.playthegame.org/upload/documents/playthegameconferenceprogramme.pdf
Þarna eru margir áhugaverðir fyrirlesarar og svo eru umræður og fyrirspurnir
eftir hvern fyrirlestur ásamt því sem nefnist Workshop.
Dæmi: Á sunnudagskvöldið er áhugavert málþing um ENSKA BOLTANN, sem ber
yfirskriftina: AÐEINS FYRIR MILLJARÐAMÆRINGA? Á meðal fyrirlesara eru Shaka
Hislop, fyrrverandi markvörður West Ham o.fl. liða.
Á mánudagsmorgun er fjallað um stórviðburði í íþróttum eins og
meira
Tilboðsverð fyrir Íslendinga
sem taka þátt í Play the Game

(Okt. '07) Eins og áður hefur komið fram verður Play the Game
ráðstefnan haldin á Grand Hótel í Reykjavík dagana 28. október til 1.
nóvember.Ráðstefnan er einn liður í 100 ára afmæli UMFÍ. Congress Reykjavík
hefur haft veg og vanda að undirbúningi ráðstefnunnar í samvinnu við
forsvarsmenn Play the Game og UMFÍ en Samtök íþróttafréttamanna koma einnig að
undirbúningi hennar.
Langflestir þátttakendur á ráðstefnuna koma erlendis frá og kaupa þá ákveðinn
pakka sem inniheldur þátttökugjald og gistingu. Nú hefur verið ákveðið og koma
til móts við Íslendinga sem hafa áhuga á að sækja ráðstefnuna. Athygli er vakin
á því að Blaðannafélag Íslands greiðir pakkann fyrir íslenska þátttakendur.
Verð sem í boði eru gilda fyrir þá daga sem þátttakendur sitja ráðstefnuna:
meira
Athyglisverð rannsókn á
íslenskum dagblöðum
(Okt. 07)
ÍSÍ bauð upp á hádegisfund þar sem Anna Guðrún Steindórsdóttir kynnti
niðurstöður BS ritgerðar sinnar frá íþróttavali KHÍ síðastliðið vor um
íþróttafréttir í dagblöðum.
Líklegt má telja að rannsókn Önnu Guðrúnar sé sú umfangsmesta og marktækasta sem
gerð hefur verið hingað til enda spannar rannsóknin allt árið 2006.
Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ stýrði fundinum og umræðum í kjölfar
fyrirlestursins.
Niðurstöður eru um margt athyglisverðar og má nú finna
glærur frá fyrirlestrinum á heimasíðu ÍSÍ.
KR fær
viðurkenningu SÍ fyrir bestu fjölmiðlaaðstöðuna boltasumarið 2007
(Sept. 07)
Samtök íþróttafréttamanna ákváðu í vor að verðlauna það lið sem stæði sig best
hvað varðar aðbúnað og vinnuaðstöðu fyrir íþróttafréttamenn boltasumarið
2007. Ljóst er að mörg félög standa sig með mikilli prýði í þessum efnum
en hjá nokkrum félögum er pottur brotinn.
KR-ingar
fengu flest atkvæði í kosningu íþróttafréttamanna að þessu sinni um bestu
fjölmiðlaaðstöðuna. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka
íþróttafréttamanna, afhenti Páli Sævar Guðjónssyni, fjölmiðlafulltrúa og
vallarþuli KR-inga, verðlaunaskjöld frá SÍ. Páll Sævar sagði við þetta tilefni
að hann líti á þetta sem mikla viðurkenningu fyrir KR-inga sem hefðu ávallt lagt
sig fram um að búa sem best að íþróttafréttamönnum. „Mjörg margir sjálfboðaliðar
í KR koma að þeirri miklu vinnu að undirbúa heimaleikina og þetta er
viðurkenning til okkar allra,“ sagði Páll.
ÍA
varð í 2. sæti í kjörinu en þessi tvö félög skáru sig nokkuð úr.
meira
Úttekt á
fjölmiðlaaðstöðu í Kópavogi og í Mýrinni

(Sept. 07) Í kjölfar umræðu um bága aðstöðu íþróttafréttamanna á
Laugardalsvelli fyrir skömmu hafði Þór Jónsson, forstöðumaður almannatengsla hjá
Kópavogsbæ, samband við formann SÍ og óskaði eftir því að hann tæki út aðstöðu
íþróttafréttamanna í nýrri stúkubyggingu á Kópavogsvelli og í nýju
knattspyrnuhúsi í Kópavogi sem fengið hefur nafnið Kórinn og er í
Vatnsendahverfi.
Formaður SÍ kom með nokkrar ábendingar um það sem mætti lagfæra, sérstaklega í
Kórnum. Kópavogsbær á hrós skilið fyrir að hafa frumkvæði að því vilja hafa
aðstöðu íþróttafréttamanna sem allra besta, einnig hefur verið vel hugsað fyrir
myndatökumönnum á þessum stöðum.
Þá var einnig óskað eftir því að formaður SÍ færi í Mýrina, nýja handboltahöll í
Garðabæ, til að koma með tillögur um betri aðstöðu fyrir íþróttafréttamenn en
þar gleymdist að taka slíkt með í reikninginn við hönnun hússins. Um
bráðabirgðaaðstöðu verður að ræða fram að áramótum í Mýrinni en hugmyndir um
framtíðarlausn eru komnar á koppinn. Frumkvæði Stjörnumanna er einnig fagnað.
Ásgeir
fallinn frá
(Sept.
'07) Ásgeir Elíasson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, lést
þann 9. september sl. Íþróttafréttamenn áttu ávallt fyrirmyndar samstarf við
Ásgeir en hann var einn af bestu sonum íslenskrar knattspyrnu. Samtök
íþróttafréttamanna senda innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Ásgeirs.
Samtökin minntust Ásgeirs með því að senda blómsveig við útför hans.
Sameiginleg yfirlýsing KSÍ og SÍ
(Sept. ´07) Í kjölfar undangenginnar umræðu um aðstöðu
íþróttafréttamanna á Laugardalsvelli s.l. laugardag vilja KSÍ og SÍ koma
eftirfarandi á framfæri.
KSÍ hefur ekki að öllu leyti
lokið framkvæmdum við aðstöðu fréttamanna á Laugardalsvelli og harmar að
aðstæður íþróttafréttamanna voru ekki eins og best verður á kosið en unnið
verður að frekari endurbótum á næstunni. Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til
þess að úr aðstöðu verði bætt eftir kostum fyrir leik Íslands og Norður Írlands
síðar í dag.
KSÍ og SÍ
munu taka upp viðræður í framhaldinu um aðstöðu íþróttafréttamanna.
Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ
Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna.
Svar KSÍ:
Óska eftir fundi!
(Sept. 07)
Kl. 13.59 barst SÍ svar frá KSÍ vegna bréfs samtakanna um aðstöðuleysi á
Laugardalsvelli:
Heill og sæll Þorsteinn.
Undirritaður óskar eftir fundi með formanni/fulltrúum stjórnar Samtaka
íþróttafréttamanna vegna þessa máls. Þriðjudagur 11. september eftir hádegi
hentar mér.
Bestu kveðjur
Þórir Hákonarson
Framkvæmdastjóri KSÍ
Formaður SÍ sendi framkvæmdastjóra KSÍ eftirfarandi bréf í kjölfarið:
Sæll og blessaður Þórir.
Það eru okkur í Samtökum íþróttafréttamanna gríðarleg vonbrigði að KSÍ geti ekki
svarað bréfi okkar efnislega eins og um var beðið, hvað þá að biðjast afsökunar
á þeirri aðstöðu sem boðið var upp á á Laugardalsvelli sl. laugardag. Það sýnir
enn og aftur virðingarleysi fyrir okkar starfi.
Vonandi fást einhver svör á fundi með framkvæmdastjóra KSÍ.
Virðingarfyllst,
Þorsteinn Gunnarsson
Harðort bréf
til KSÍ vegna aðstöðuleysis á Laugardalsvelli
(Sept. ´07) Eftir landsleik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli
var íslenskum íþróttafréttamönnum nóg boðið vegna aðstöðuleysis og var
eftirfarandi bréf sent til KSÍ:
KSÍ
Bt. Geirs Þorsteinssonar formanns, Þóris Hákonarsonar framkvæmdastjóra,
starfsfólks KSÍ, vallarstjóra og stjórnarmanna KSÍ.
Íslenskir íþróttafréttamann hafa ýmislegt látið yfir sig ganga í
gegnum tíðina hvað varðar aðstöðu á knattspyrnuleikjum. En nú er mælirinn
fullur. Á nýuppgerðum þjóðarleikvanginum var íslenskum íþróttafréttamönnum sýnd
þvílík vanvirðing á landsleik Íslands og Spánar í gær að elstu menn í þessu fagi
muna ekki eftir öðru eins.
Vinnuaðstaða íslenskra íþróttafréttamanna á leiknum var til
háborinnar skammar því það rigndi á tölvur og skrifblokkir. Þá var engin gæsla á
okkar vinnusvæði. Fólk ráfaði þarna um ölvað og að leik loknum var ekki
vinnufriður. Verst af öllu var að enginn hjá KSÍ sem rætt var við á leiknum í
gær sýndi vilja til þess að bæta úr málinu eða vera okkur innan handar, sem
endurspeglar virðingarleysið fyrir okkar starfi.
Undirritaður ásamt öðrum stjórnarmönnum í Samtökum
íþróttafréttamanna mætti á fund fyrir einu og hálfu ári hjá þáverandi
framkvæmdastjóra KSÍ. Þar var fullyrt að við þyrftum engar áhyggjur að hafa, við
hefðum aðstöðu innandyra á landsleikjum í framtíðinni. Þessi loforð voru svikin
á Laugardalsvelli í gær.
Samtök íþróttafréttamanna hafa einnig kvartað yfir aðstöðuleysi við
KSÍ við önnur tækifæri en því miður
hefur því oftar en ekki verið svarað með tómlæti eða útúrsnúningum fram að
þessu.
Samtök íþróttafréttamanna krefjast þess að KSÍ biðji félagsmenn
okkar afsökunar á þeirri aðstöðu sem boðið var upp á í gær og að KSÍ bæti
snarlega úr vinnuaðstöðu fyrir íþróttafréttamenn á landsleikjum í framtíðinni.
Að auki viljum við fá svar við eftirfarandi spurningum:
-
Hvers vegna var okkur boðið upp á þessa óásættanlegu aðstöðu?
-
Hvers vegna voru starfsmenn KSÍ víðs fjarri meðan á leik stóð?
-
Hvers vegna var engin gæsla þarna í kring?
-
Er það ásetningur KSÍ að losna við íslenska íþróttafréttamenn af
landsleikjum á Laugardalsvelli?
-
Hvers konar aðstöðu verður okkur boðið upp á þegar Ísland mætir
Norður-Írlandi á Laugardalsvelli á miðvikudaginn?
Svar óskast í síðasta lagi mánudaginn 10. september nk. kl. 14.
F.h. Samtaka
íþróttafréttamanna
Þorsteinn
Gunnarsson, formaður
Fréttamannafundur Play the game á Grand Hótel

(Sept. 07)
Forsvarsmenn Play The Game ráðstefnunnar, sem haldin verður í Reykjavík
dagana 28. október til 1. nóvember, efndu í gær til blaðamannafundar á Grand
Hótel. Jens Sejer Andersen, framkvæmdastjóri Play The Game, sagði frá
undirbúningi ráðstefnunnar sem miðar vel áfram. Í máli hans kom fram að búist er
við um 300 þátttakendum erlendis frá en dagskrá ráðstefnunnar er mjög áhugaverð
en þekktir fyrirlesarar koma til landsins.
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, sagði í stuttu ávarpi að ráðstefnan væri mjög
spennandi verkefni en hún væri einn liður í dagskrá hreyfingarinnar sem fagnaði
100 ára afmæli á þessu ári. Sjá nánar um ráðstefnuna í fleiri fréttum hér
neðar á síðunni en Samtök íþróttafréttamanna eru aðili að henni.
Á myndinni má
sjá Þorstein Gunnarsson, formann SÍ og Jens Sejer Andersen, framkvæmdastjóra
Play The Game, bera saman bækur sínar.
Ekki aukarás
fyrir íþróttir á RÚV?
(Sept.
´07) Í frétt í Morgunblaðinu í dag. 7. sept., segist Páll Magnússon
útvarpsstjóri ekki gera ráð fyrir því að sett verði sérstök íþróttarás á
laggirnar á RÚV. Í Morgunblaðinu segir Páll:
"Það eru ekki
uppi fyrirætlanir um það að stofna sérstaka íþróttarás, enda samræmist það ekki
hlutverki Ríkisútvarpsins. En núna erum við að vinna að framtíðardreifikerfi
sjónvarpsins sem verður á stafrænu formi og þá höfum við möguleika á því að
grípa til sérstakrar hliðarrásar þar sem við gætum sýnt atburði af þessu tagi án
þess að raska hefðbundinni dagskrá. Á næstu misserum þurfum við að taka
stefnumarkandi ákvarðanir varðandi dreifikerfið þannig að ég þori ekki að segja
nákvæmlega hvenær það verður komið í notkun."
Páll segist vel geta skilið að fólk verði óánægt þegar beinar
íþróttaútsendingar taki heilu kvöldin en segir það skyldu RÚV að sýna efni þótt
það hafi ekki stóra skírskotun. "Við sýnum t.d. á kjörtíma á kvöldin
heimildarmyndir sem við vitum að hafa ekki gríðarlega mikla skírskotun, kannski
með 15% áhorf og það gildir um margt efni sem við erum með." Spurður hvort
hann gæti hugsað sér að klippa á efni á kjörtíma fyrir annað en boltaíþróttir
segir Páll það hæpið.
BLAÐAMANNAFUNDUR– PLAY THE GAME
(Ágúst '07)
Forsvarsmenn ráðstefnunnar PLAY THE GAME efna til blaðamannafundar í Hvammi á
Grand Hótel þriðjudaginn 4.september kl. 14.00 þar sem ráðstefnan verður kynnt í
stórum dráttum.
Ráðstefnan PLAY THE GAME verður haldin á Íslandi dagana 28. október til 1.
nóvember nk. Þetta er í fimmta sinn sem hún er haldin en sú fyrsta fór fram
1997. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem hún er haldin utan Danmerkur.
Búist er við um 300 íþróttafréttamönnum og háskólafólki sem sérhæfir sig í
íþróttarannsóknum, til Íslands, alls staðar úr heiminum.
Fyrsta PLAY THE GAME ráðstefnan var haldin að tilstuðlan dönsku
ungmennafélagssamtakanna, DBI, en er nú sjálfstæð eining undir forsvari Danans
Jens Sejer Andersen og er eina óháða ráðstefnan um íþróttir í heiminum. Á
ráðstefnunni verða hvorki fleiri né færri en 40 fyrirlesarar um ýmislegt sem
snýr að íþróttum en rauði þráðurinn í ráðstefnununum fram að þessu hefur verið
að taka fyrir og kryfja ýmis áhugaverð mál í heimi íþróttanna vegar um heiminn,
varpa ljósi á pólitísku hliðina á íþróttum sem er oft á tíðum með ólíkindum,
skoða lyfjamál, spillingamál auk þess sem ýmsir þekktir einstaklingar úr heimi
íþróttanna halda fyrirlestra.
Í tilefni 100 ára afmælis UMFÍ var ákveðið að ráðstefnan færi fram á Íslandi en
UMFÍ leggur mikla vinnu og fjármagn í að gera hana sem glæsilegasta.
Þar sem uppistaða gestanna á ráðstefnunni eru íþróttafréttamenn ákvað UMFÍ að
bjóða Samtökum íþróttafréttamanna að gerast aðili að ráðstefnunni að þessi
sinni. Stjórn SÍ þáði boðið enda sérlega áhugavert verkefni. Formaður SÍ,
Þorsteinn Gunnarsson, fékk það verkefni að taka sæti í dagskrárnefnd
ráðstefnunnar þar sem ákveðið verður hvaða málefni verða til umfjöllunar. PLAY
THE GAME, hefur hann fengið gríðarlega jákvæð viðbrögð við því að ráðstefnan
fari fram á Íslandi. Vettvangur hennar verður Grandhótel og að sjálfsögðu eru
félagar í Samtökum íþróttafréttamanna hvattir til þess að mæta. Þarna verða
eflaust nóg af fréttapunktum.
Nánari upplýsingar eru á www.playthegame.org – en þar er einnig að finna margar
mjög áhugaverðar fréttir úr heimi íþróttanna um t.d. spillingamál, lyfjahneyksli
og íþróttapólitík.
Hjörtur
nýr liðsmaður RÚV
(Ágúst '07) Íþróttadeild RÚV hefur fengið góðan liðsauka en
Hjörtur Hjartarson hefur þar störf innan skamms sem íþróttafréttamaður. Hjörtur
lauk fjölmiðlanámi frá bandarískum háskóla í vor en hann starfaði m.a. með
blaðamaður á Skessuhorni. Hjörtur er kunnur markahrókur með ÍA og nú síðast
Þrótti en hann er langmarkahæstur í 1. deildinni í sumar.
KSÍ þakkar
góða umfjöllun
(Ágúst ´07) KSÍ vill
koma á framfæri kærum þökkum til fjölmiðla fyrir gott samstarf og frábæra
umfjöllun um úrslitakeppni EM U19 landsliða kvenna, sem fram fór hér á landi í
júlí. Umfjöllun ykkar átti stóran þátt í vel heppnuðu og skemmtilegu móti.
Með kærri kveðju og þökk fyrir gott samstarf.
Kveðja,
Ómar Smárason, KSÍ
Handritið að
bókinni um Íþróttamenn ársins tilbúið
(Ágúst ´07) Hallgrímur Indriðason hefur lokið við að skrifa
handrit að bók um 50 ára sögu kjörs íþróttamanns ársins sem Samtök
íþróttafréttamanna gefa út í samvinnu við Eddu-útgáfu. Sögu Samtaka
íþróttafréttamanna eru einnig gerð góð skil í bókinni.
Íþróttamenn
ársins og/eða sérfræðingar hafa fengið sína kafla til yfirlestrar og verið er að
safna myndum í bókina. Þá hefur herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
ritað ávarpsorð. Vantað er til útgáfunnar og hefur Alþjóða Ólympíuhreyfingin
veitt vegleganstyrk til hennar ásamt íslenskum fyrirtækjum og sérsamböndum.
Reiknað er með að bókin verði tilbúin til prentunar í september.
Ný
íþróttastöð í loftið
(Ágúst
'07) Ný íþróttastöð, Sýn2, fór á í loftið laugardaginn 4. september sem
eingöngu er helguð enska boltanum og allt sem snýr að honum. Alls verða 380
leikir í ensku úrvalsdeildinni í beinni útsendingu í vetur en einnig verður sýnt
beint frá leikjum í ensku B-deildinni. Sýn2 nær til yfir 98% heimila í landinu.
Íþróttafréttamenn Sýnar og Stöðvar 2 hafa í nógu að snúast en leikjunum á Sýn2
verður lýst á íslensku. Á hliðarrásunum verða íslenskir og enskir þulir. Sýn2
verður með ýmsa dagskrárgerð í kringum enska boltann í vetur en sem dæmi verða
öll tilþrif dagsins sýnd á Sýn2 um leið og síðasti laugardagsleikurinn er
flautaður af.
Þar með reka 365
ljósvakamiðlar tvær sjónvarpsstöðvar þar sem eingöngu er að finna íþróttaefni.
Nýr framkvæmdastjóri ÍSÍ
(Júlí '07)
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti einróma á fundi sínum 26. júlí að ráða Líneyju
Rut Halldórsdóttur sem framkvæmdastjóra ÍSÍ. Líney tekur við starfinu af Stefáni
Konráðssyni sem ráðið hefur sig sem framkvæmdastjóra Íslenskrar Getspár.
Líney er fyrsta konan sem gegnir starfi framkvæmdastjóra ÍSÍ, stærstu
fjöldahreyfingar á Íslandi.
Líney er valin úr fjölbreyttum hópi mjög frambærilegra umsækjenda en umsækjendur
um stöðuna voru rúmlega fimmtíu talsins.
Líney Rut Halldórsdóttir er 46 ára íþróttafræðingur og starfar sem deildarstjóri
íþrótta- og æskulýðsdeildar Menntamálaráðuneytisins. Líney hefur starfað sem
sviðsstjóri Afrekssviðs ÍSÍ og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á starfi
íþróttahreyfingarinnar.
Námskeið fyrir félaga í
Samtökum íþróttafréttamanna
(Júlí '07)
Heilsuakademían og Smári Jósafatsson bjóða félögum í Samtökum
Íþróttafréttamanna á sérstakt námskeið út í Viðey: Smart hlaupastíll sem byggir
á aldagömlum Tai Ch'i aðferðum og hlaupastíl Afríkumanna.
Margt áþekkt Pilates líkamsbeytingu og einföldun sem auðvelt er að tileinka sér.
SJÁ NÁNAR
HÉR:
Alþjóðlegur
dagur íþróttafréttamanna
(Júlí '07)
Í dag, 2. júlí, er Alþjóðlegur dagur íþróttafréttamanna en þetta er
þrettánda árið í röð sem er haldinn að frumkvæði Alþjóðasamtaka
íþróttafréttamanna, AIPS. Stjórn SÍ sendir félagsmönnum sínum baráttukveðjur í
tilefni dagsins. Forseti AIPS, Gianno Merlo, skrifar pistil á heimasíðu
samtakanna (aipsmedia.com) þar sem hann hvetur íþróttafréttamenn um allan heim
til dáða og að standa vörð um sjálfstæði sitt.
Hrafnkell nýr
íþróttastjóri RÚV
(Júní '07) Í kjölfar þess að Samúel Örn Erlingsson hættir sem
yfirmaður íþróttadeildar RÚV, hafa fylgt ýmsar skipulagsbreytingar í kjölfarið.
Hrafnkell Kristjánsson hefur verið ráðinn nýr yfirmaður íþróttadeildarinnar en
hann hefur starfað þar sem íþróttafréttamaður undanfarin ár. Hann mun verkstýra
íþróttadeildinni sem heyrir nú undir dagskrársvið þar sem Þórhallur Gunnarsson
ræður ríkjum.

Hjalti og
Dagur unnu fyrsta golfmót SÍ í 20 ár
(Júní '07) Fyrsta golfmótið sem Samtök íþróttafréttamanna hafa
staðið fyrir á annan áratug fór fram hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar.
Rétt um
þriðjungur félagsmanna mætti til leiks. Leikið var með Texas scramble
fyrirkomulagi og var keppni jöfn og spennandi. Eftir flókna forgjafaútreikninga
stóðu Dagur á DV og Hjalti á Fréttablaðinu uppi sem sigurvegarar. Eftir mótið
var boðið upp á mat og veitingar í golfskálanum.
Bláa lónið gaf glæsilega vinninga á matsölustað sínum sem er sannarlega fimm
stjörnu. Mótið tókst í alla staði mjög vel og verður vonandi árlegur viðburður í
framtíðinni. Rétt er að geta hversu vel var mætt frá Fréttablaðinu að þessi
sinni en eini fjölmiðillinn sem ekki átti fulltrúa var RÚV!
Þess má geta að
Henry Birgir bloggar um þetta mót á
http://blogg.visir.is/henry/2007/06/16/mistok-i-talningu/
Þá bloggar
Sigurður Elvar um mótið á
http://seth.blog.is/blog/seth/
Golfmót SÍ
föstudaginn 15. júní á Vatnsleysuströnd
(Júní '07) Stjórn SÍ hefur ákveðið að halda golfmót fyrir
félagsmenn og jafnframt íþróttafréttamenn sem starfa í sumarafleysingum,
föstudaginn 15. júní kl. 14.00. Mótið átti að halda 1. júní
sl. en var frestað vegna veðurs.
Mótið fer fram
hjá Golfklúbbi Vatnleysustrandar, völlurinn er 9 holur en gríðarlega
skemmtilegur og er aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Hafnarfirði. Glæsileg
verðlaun og svo borðum við saman á eftir.
Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta, þeir sem eru lítt vanir að höndla
golfkylfur mæti endilega líka. Tveir og tveir spila saman og er betri boltinn
leikinn.
ATHUGIÐ! Þeir sem ætla að vera með verða að skrá sig með því að senda
staðfestingu í tölvupósti á formann.... thorsteinn.gunnarsson@365.is
Ævintýraferð
Valtýs Björns til Olympíu

(Júní '07)
Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttmaður fór á ráðstefnu í Olympiu í
Grikklandi7. til 12. maí sl. í boði Alþjóða Ólympíuhreyfingarinnar.
Ólympíuhreyfingin bauð alls 40 íþróttafréttamönnum (frá 40 löndum) og stóð
Íslandi til boða að senda einn fulltrúa eins og greint var frá á heimasíðunni á
sínum tíma. Aðal umfjöllunarefni ráðstefnunnar var Ólympíuandinn og
siðferðisrammi íþróttafréttamanna og var Valtýr Björn sá eini sem sótti um að
fara. ÍSÍ styrkti hann til fararinnar.
Að beiðni
heimasíðunnar skrifaði Valtýr Björn smá pistil um ævintýraferð sína til Olympiu
og má lesa hann hér.
Liðsauki á
Sýn
(Júní '07)
Íþróttafréttamönnum á Sýn hefur fjölgað um tvo enda fjölgar þar verkefnum með
tilkomu enska boltans í ágúst. Nýjasti liðsmaður íþróttadeildar Sýnar er
Guðmundur Benediktsson sem áður var lýsandi og pródúsent á Skjásporti en hann er
enn sjálfur á fullu í boltanum með Val. Hann hefur verið ráðinn í fullt starf á
Sýn. Þá hefur Hans Steinar Bjarnason verið í afleysingum frá síðustu áramótum en
verður áfram í fullu starfi. Þar með eru sex íþróttafréttamenn á Sýn (og Stöð 2)
í fullu starfi.

Samúel Örn
hættir hjá RÚV 1. júlí
(Júní '07)
Samúel Örn Erlingsson, yfirmaður íþróttadeildar RÚV, hefur ákveðið að láta af
störfum frá og með 1. júlí nk. eftir 25 ára starf hjá stofnuninni. Hann segir í
viðtali við Blaðið að RÚV standi á tímamótum og hann einnig og því tilvalinn
tími til að staldra við og velta fyrir sér hlutunum. Ekki er ljóst hvað Samúel
Örn tekur sér fyrir hendur en hann reiknar jafnvel með því að setjast á
skólabekk. Hann fer yfir víðan völl í viðtalinu og rifjar upp eftirminnileg
atvik úr starfi sínu sem íþróttafréttamaður. Samtök íþróttafréttamanna senda
Samúel Erni baráttu- og saknarkveðjur á þessum tímamótum. Samúel Örn var í
tvígang formaður SÍ, fyrst 1984-1987 og aftur 1988-1992. Hann bar ávallt hag
samtakanna fyrir brjósti og á t.d. stóran þátt í því hversu kjör íþróttamanns
ársins tók miklum stakkaskiptum þegar það var fært inn í sjónvarpssal. Þá var
hann áberandi forystumaður samtakanna bæði á Norðurlandaþingum og AIPS-þingum.
Myndin er fengin
af heimasíðu kappans: www.samuelorn.is
Viðburðarríkt
þing hjá AIPS í Bregenz í Austurríki
(Maí
'07) AIPS, Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, héltu sitt árlega þing að
þessu sinni í Bregenz í Austurríki en á næsta ári fer fram EM í knattspyrnu í
Austurríki og Sviss. Formaður, SÍ, Þorsteinn Gunnarsson, sótti þingið. Til
Bregenz komu fulltrúar frá 107 löndum en þetta var afmælisþing, það sjötugasta í
röðinni og því var það veglegra en oft áður og aðsóknin aldrei verið betri.
Ýmis hagsmunamál íþróttafréttamanna um allan heim báru á góma að vanda en segja
má að þingið hafi verið nokkuð sögulegt að þessu sinni. Framkvæmdastjóri AIPS,
ákvað að segja af sér fyrir þingið til þess að axla ábyrgð á fjármálaóreiðu
innan AIPS á valdatíð fyrrverandi forseta. Á þinginu sjálfu dró hann uppsögnina
til baka og þá varð uppi fótur og fit og framkvæmdastjórnin hótað að segja af
sér í heilu lagi. Það fór svo að framkvæmdastjórinn sagði upp störfum öðru
sinni.
Álfurnar funda einnig á þinginu. UEPS (Evrópusamtök íþróttafréttamanna) héldu
einnig sinn aðalfund meira
Misbrestur í
aðstöðu fjölmiðlamanna
(Maí '07) Samtök íþróttafréttamanna sendu út GÁTLISTA til
félaganna í Landsbankadeild karla áður en Íslandsmótið hófst til þess að
auðvelda þeim að skapa íþróttafréttamönnum viðunandi vinnuaðstöðu.
Eftir fyrstu umferðina verður að segjast eins og er að því miður féllu of mörg
félög á prófinu á sama tíma og önnur félög voru til mikillar fyrirmyndar og eru
strax komin á blað þegar við munum verðlauna fyrir bestu aðstöðuna. Helst
vantaði að blaðafulltrúar gæfu sig fram, misbrestur var á leikskýrslum, kaffi og
meðlæti var á sumum völlum ekki sjáanlegt osfrv. osfrv.
Versta aðstaðan var á sjálfum Laugardalsvellinum á viðureign Vals og Fram. Þar
voru íþróttafréttamenn látnir sitja úti í kuldanum, þeir fengu hvorki vott né
þurrt og leikskýrslur fuku út um allt. Sem betur fer rigndi ekki. Eftir
kvartanir var íþróttafréttamönnum hleypt inn í samkomusal eftir u.þ.b. 20 mín.
með glæsilegt útsýni yfir völlinn. Það eru tilmæli til KSÍ, Vals og Fram að þar
verði okkur boðin aðstaða í framtíðinni á leikjum í Landsbankadeild, það er
vanvirðing við okkur að bjóða okkur upp á að sitja úti þegar allra veðra er von.
Meðfylgjandi er GÁTLISTINN sem við sendum út á dögunum, hann á að auðvelda
félögunum að standa sig í stykkinu. Góð ábending barst með leikskýrslu, að hafa
hana Á EINU BLAÐI en ekki tveimur, eins og KR-ingar o.fl. hafa löngum gert.
Bréf þetta
var sent til forráðamanna félaganna í Landsbankadeildinni og KSÍ.

Vel heppnað
Norðurlandaþing í Svíþjóð - Næsta þing í Eistlandi
(Maí '07) Norðurlandaþing íþróttafréttamanna fór fram í Ronneby í
Svíþjóð 3. til 6. maí síðastliðinn.Þingið tókst í alla staði mjög vel og var
Svíum til sóma. Ýmisleg fróðleg erindi voru haldin og svo farið á veðreiðar og
ýmislegt fleira. Stjórn samtaka SÍ fór á þingið, þ.e. Þorsteinn, Guðmundur og
Jón Kristján en Hrafnkell forfallaðist á síðustu stundu af óviðráðanlegum
orsökum. Ákveðið var að næsta þing fari fram í Eistlandi eftir tvö ár en Eistar
hafa verið þátttakendur á Norðurlandaþinginu síðan 1997.
Ítarlega frásögn um Norðurlandaþingið í Svíþjóð má finna
hér.
Danska
sjónvarpið hættir með íþróttadeild
(Maí '07)
Forráðamenn danska ríkisútvarpsins hyggjast leggja niður íþróttadeild
sjónvarpsins í sparnaðarskyni, alla vega í þeirri mynd sem hún er nú segir
fréttavefur Berlingske Tidende. Þremur yfirmönnum íþróttadeildarinnar hafa verið
boðin störf annarsstaðar hjá útvarpinu.
Sýningarréttur sem ríkisútvarpið á vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu og
Ólympíuleikanna verður seldur og þáttagerð lögð af, en íþróttafréttir verða
áfram sagðar í almennum fréttatímum.
BT segir tillögurnar verða teknar fyrir á stjórnarfundi Danmarks Radio á morgun.
Ástæðan fyrir þessari ákvörðun er sögð sú að DR verði að skera rekstrarkostnað
verulega niður vegna gríðarlegs kostnaðar við byggingu nýrra höfuðstöðva
fyrirtækisins.
Danska íþróttasambandið harmaði í dag fyrirhugaðar aðgerðir og segir að þær muni
bitna mjög á minni íþróttagreinum.
Af ruv.is
Gátlisti til
liðanna í Landsbankadeildunum
(Maí '07) Samtök íþróttafréttamanna hafa sent liðunum í
Landsbankadeildum karla og kvenna GÁTLISTA sem þau geta stuðst við til þess að
bæta aðstöðu fjölmiðlafólks á leikjum í sumar. Gátlistinn hefur fengið góðar
móttökur hjá félögunum. Samtök íþróttafréttamanna ætla svo að verðlauna þau
félög sem standa sig best í að bæta aðstöðu íþróttafréttamanna í sumar.
Gátlistann má sjá hér.
Undirbúningur
bókarinnar gengur samkvæmt áætlun
(Apríl '07) Eins og greint var frá í 50 ára afmælisfagnaði SÍ í
haust stendur til að gefa út bók næsta haust um 50 ára sögu kjörsins á
íþróttamanni ársins. Hallgrímur Indriðason, fréttamaður á RÚV og fyrrverandi
íþróttafréttamaður og félagsmaður SÍ, er langt kominn með að skrifa bókina, sem
gefin verður út í samvinnu við Eddu-útgáfu. Sigurður Svavarsson kemur að
útgáfunni fyrir hönd Eddu-útgáfu en Þorsteinn Gunnarsson fyrir hönd SÍ.
Hallgrímur er langt kominn með að skrifa handrit að útgáfunni. Óskar Ófeigur,
íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu, mun sjá um umbrot. Ágætlega gengur að
fjármagna útgáfuna og er sú vinna á lokasprettinum.
Adolf Ingi
gestur í sumarskóla UEPS
(Apríl '07) Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi formaður SÍ, verður
gestur í Sumarskóla Evrópusamtaka íþróttafréttamanna (UEPS). Sumarskólinn verður
í Olympíu í Grikklandi síðustu vikuna í maí. Þar sem formaður SÍ, Þorsteinn
Gunnarsson, átti ekki heimangengt, buðu Evrópusamtökum Adolfi Inga að koma. Hann
mun halda fyrirlestur í Sumarskólanum og verður væntanlega ekki í nokkrum
vandræðum með að koma fyrir sig orði!
Samúel Örn
áfram hjá RÚV
(Apríl '07) Breytingarnar á íþróttadeild RÚV sem urðu í kjölfar
þess að stofnunni var breytt í opinbert hlutafélag (sjá neðan) urðu ekki eins
miklar og haldið var í fyrstu. Samúel Örn Erlingsson verður áfram yfirmaður
íþróttadeildarinnar en hún mun engu að síður færast undir dagskrárdeild.
Landsmenn munu því njóta góðs af því að reynsluboltinn og fagmaðurinn Samúel Örn
muni áfram stýra íþróttadeildinni af sama myndarskap og hann hefur gert.
Norðurlandaþing í maí
(Apríl '07) Norðurlandaþing íþróttafréttamanna verður haldið í
fyrstu helgina í maí en það fer fram í Ronneby í Svíþjóð. Að vanda verður fundað
um málefni samtakanna en meðal gesta á þinginu verða formaður og
framkvæmdastjóri sænska knattspyrnusambandsins, formaður sænska
íþróttasambandsins, formaður sænsku Ólympíunefndarinnar og fleiri. Einnig verður
farið á sænskar hestaveðreiðar, svo eitthvað sé nefnt. Alls fara 4-5 félagsmenn
á þingið og áhugasamir geta haft samband við formann.
Aðgangur að
HM í frjálsum íþróttum
(Mars '07) Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Osaka
í Japan 25. ágúst til 2. september nk. Samkvæmt upplýsingum frá mótshöldurum fá
íslenskir fjölmiðlar pláss fyrir einn skrifandi íþróttafréttamann en engan
ljósmyndara. Umsóknarfrestur rennur út 20. apríl nk. og sendist á
wpph@osaka2007.or.jp. Ef fleiri en einn fjölmiðill hefur áhuga að fara verður
reynt að bregðast við því. Bréfið frá mótshöldurum má sjá
hér.
Íþróttafréttir og pólitík
(Mars ´07)
Pétur Gunnarsson er einn af mörgum bloggurum. Hann veltir þeirri spurningu upp í
bloggi sínu hvernig það sé eiginlega með íþróttafréttamenn og pólitík. "Ég er
nokkuð viss um að aldrei hafa jafnmargir núverandi og fyrrverandi
íþróttafréttamenn verið í framboði til Alþingis og nú. Tveir þeirra eru
leiðtogar sinna flokka," segir Pétur m.a. Slóðin á bloggið hans er:
http://hux.blog.is/blog/hux/#entry-154800.
Fréttamannastyrkir Norðurlandaráðs 2007
(Mars '07)
Norðurlandaráð veitir fréttamönnum á Norðurlöndum árlega styrki til að
fjalla um norræn málefni og árið 2007 kemur í Íslands hlut fjárhæð að upphæð
90.000 danskar krónur. Rétt er að vekja athygli á því að þessir styrkir eru
einnig fyrir íþróttafréttamann. Styrkjunum er ætlað að auka áhuga fréttamanna á
norrænum málefnum og norrænu samstarfi og gera þeim m.a. kleift að fjármagna
ferðalög tengd greinaskrifum eða umfjöllun.
Styrkir eru veittir einum eða fleiri (íþrótta)fréttamönnum dagblaðs, tímarits,
útvarps eða sjónvarps. Sjálfstætt starfandi fréttamönnum er einnig heimilt að
sækja um styrk.
Styrkjum er úthlutað á grundvelli greinargerða í umsókn. Við styrkveitinguna er
m.a. (meira)
Breytingar
hjá RÚV
(Mars '07) Í kjölfar þess að Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert
hlutafélag á dögunum var staða yfirmanns íþróttadeildar, sem Samúel Örn
Erlingsson hefur gegnt undanfarin ár, lögð niður. Jafnframt var íþróttadeildin
færð undir dagskrárdeild RÚV ohf. en nýr yfirmaður hennar er Þórhallur
Gunnarssson sem hefur verið ritstjóri Kastljóssins. Þórhallur er því í raun nýr
yfirmaður íþróttadeildar RÚV ohf. Óvíst er hvað tekur við hjá Samúel Erni en sem
kunnugt er hreppti hann annað sætið á lista Framsóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar og það er aldrei að vita nema
að hann komist á þing!
Valtýr Björn
til Grikklands
(Mars '07) Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttmaður fer á
ráðstefnu í Olympiu í Grikklandi 7. til 12. maí nk. í boði Alþjóða
Ólympíuhreyfingarinnar. Ólympíuhreyfingin býður alls 40 íþróttafréttamönnum (frá
40 löndum) og stendur Íslandi til boða að senda einn fulltrúa eins og greint var
frá á heimasíðunni á sínum tíma. Aðal umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru
Ólympíuandinn og siðferðisrammi íþróttafréttamanna og var Valtýr Björn sá eini
sem sótti um að fara. ÍSÍ styrkir hann til fararinnar sem eflaust verður mikið
ævintýri fyrir kappann.

Gamli
verðlaunagripurinn til sýnis á Þjóðminjasafninu
(Mars '07) Gamli
verðlaunagripurinn sem fylgdi kjöri íþróttamanns ársins fyrstu 50 árin er nú til
sýnis í anddyri Þjóðminjasafnsins en safnið fékk hann að gjöf frá Samtökum
íþróttafréttamanna þann 1. desember sl.
Verðlaunagripurinn vekur mikla athygli enda geymir hann einstaka sögu
íþróttaafreka í hálfa öld og að sögn starfsfólks safnsins byrja allir safngestir
á því að gefa sér góðan tíma í að skoða gripinn áður en farið er inn á safnið. Á
myndinni má sjá tvær ungar stúlkur, Valgerði Maríu og Guðnýju Evu, skoða
verðlaunagripinn á dögunum. Eins og sjá má er búið að smíða sérstakan skáp utan
um verðlaunagripinn sem er alltaf jafn glæsilegur á að horfa.
Elvar Geir á
DV
(Mars '07)
DV hefur fengið liðsauka því Elvar Geir Magnússon hefur tekið til starfa
sem íþróttafréttamaður. Elvar Geir hefur starfað á Fréttablaðinu undanfarin
misseri samhliða námi. Þar með eru þrír starfandi íþróttafréttamenn hjá DV en
sem kunnugt er var það gert að dagblaði á ný í lok febrúar. Þess má geta að
Elvar Geir bloggar á
http://elvargeir.blog.is/blog/elvargeir
Klúður
mótshaldara á HM í sundi
(Mars '07) AIPS, Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, hafa mótmælt
vinnubrögðum mótshaldara í Ástralíu en HM í sundi fer fram í Melbourne í þessum
mánuði. Mótshaldarar ætla sér að græða á íþróttafréttamönnum með því að
rukka þá um 770 dollara fyrir fulla þjónustu í fréttamannamiðstöð mótsins, þ.e.
sæti, borð og aðgang að interneti. Þess má geta að stærsta farsímafyrirtæki
Ástralíu, Telstra, er einn helsti styrktaraðili mótsins en engu að síður ætla
mótshaldarar að fara þessa nýju leið sem hefur farið mjög fyrir brjóstið á
íþróttafréttamönnum um allan heim.
Mótshaldarar segja að takmarkað pláss fyrir íþróttafréttamenn knýji þá í
þessar aðgerðir til þess að hugsanlega fækka þeim íþróttafréttamönnum sem
koma til Ástralíu á mótið. Óvíst er hvaða afleiðingar þetta hefur í för
með sér.
Mótmælabréf AIPS má sjá hér:
http://www.aipsmedia.com/index.php?page=news&cod=880&tp=n
Nýtt
íþróttablað
(Febr. '07) Þriðjudaginn 26. febrúar sl. fylgdi 20 síðna
íþróttablað með Fréttablaðinu. Þar er augljóslega ætlunin að fjalla um íþróttir
og íþróttafólk á annan hátt en á hefðbundnum íþróttasíðum dagblaðanna en
forsíðuna prýðir sunddrottningin Ragnheiður Ragnarsdóttir. Íþróttablaðið kemur
út einu sinni í mánuði en ritstjóri en Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrverandi
íþróttafréttamaður á DV, Fréttablaðinu og síðar ristjóri DV.
Aðalfundur SÍ fyrir árið 2006
(Febr. '07)
Aðalfundur SÍ fyrir árið 2006 var haldinn 21. febrúar. Góð mæting var á fundinn
en alls mættu 16 af 24 skráðum félögum. Nýjasti meðlimurinn er Benedikt Bóas
Hinriksson á DV en félagar í SÍ hafa aldrei verið fleiri.

Þorsteinn Gunnarsson, formaður SÍ,
flutti skýrslu stjórnar og fór yfir síðasta ár sem var ansi viðburðarríkt. 50
ára afmæli SÍ var haldið með pompi og pragt, ný heimasíða samtakanna var opnuð,
kjör á íþróttamanni ársins fór fram með glæsibrag, undirbúningur er hafinn að
útgáfu bókar um sögu kjörs íþróttamanns ársins, verðlaunagripurinn sem fylgt
hefur kjöri íþróttamanns ársins frá upphafi var afhentur Þjóðminjasafninu, svo
eitthvað sé nefnt.
Jón Kristján Sigurðsson gjaldkeri lagði fram ársreikninga. Hagnaður síðasta árs
var um 330 þúsund krónur en rekstrartekjur voru um 920 þúsund.
Þrjár breytingartillögur um reglugerð á íþróttamanni ársins lágu fyrir fundinum
og varð töluverð umræða um þær allar. Felld var tillaga um að afnema leynilegt
kjör á íþróttamanni ársins. Tillaga um að aðeins íþróttamenn sem iðka
íþróttagreinar innan ÍSÍ komi til greina í kjöri íþróttamanns ársins var
samþykkt og einnig var samþykkt tillaga um hvernig skuli staðið að kjörinu verði
tveir eða fleiri íþróttamenn (meira)
Annað
spennandi námskeið í Grikklandi
(Febr.
'07) Alþjóða Ólympíuhreyfingin (IOA) hefur sent ÍSÍ boð um að bjóða
einum íslenskum íþróttafréttamanni á ráðstefnu í Olympiu í Grikklandi 7. til 12.
maí nk. Ólympíuhreyfingin býður alls 40 íþróttafréttamönnum (frá 40 löndum) og
stendur Íslandi til boða að senda einn fulltrúa. Aðal umfjöllunarefni
ráðstefnunnar eru Ólympíuandinn og siðferðisrammi íþróttafréttamanna.
Þátttakendur mega ekki vera eldri en 45 ára og rennur umsóknarfrestur út 15.
mars nk. og þarf að senda með bréf um vangaveltur viðkomandi um viðfangsefni
ráðstefnunnar. Uppihald er allt í boði Alþjóða Ólympíuhreyfingarinnar sem og
flutningar frá Aþenu til Olympia. SÍ munu reyna að koma eitthvað til móts við
þátttakendur, í samvinnu við ÍSÍ, um að greiða flugið. Áhugasamir hafi samband
við formann SÍ sem fyrst.
Hér má sjá bréfið frá IOA.
Henry Birgir
tilnefndur til Blaðamannaverðlauna
(Febr. ´07) Dómnefnd Blaðamannaverðlauna Íslands fyrir árið 2006,
hefur tilnefnt Henry Birgi Gunnarsson, íþróttafréttamann á Fréttablaðinu, til
Blaðamannaverðlauna í flokknum Rannsóknarblaðamennska. Henry Birgir er
tilefndur fyrir fréttaskrif og eftirfylgd þar sem upplýst er um mikinn mun á
launum og kjörum karla og kvenna í A-landsliðum Íslands í knattspyrnu.
Þetta er í fyrsta skipti sem íþróttafréttamaður er tilnefndur til
Blaðamannaverðlauna. Við óskum Henry Birgi innilega til hamingju tilnefninguna.
Aðalfundur SÍ
miðvikudaginn 21. febrúar
(Febr. ´07) Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna fyrir árið 2006
verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar nk. kl. 15 (klukkan þrjú), í fundarsal
UMFÍ í Hekluhúsinu við Laugarveg (UMFÍ flutti um set á dögunum).
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum félagsins:
I. Inntaka nýrra félaga
II. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
III. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram.
IV. Lagabreytingar.
V. Stjórnarkosning.
VI. Árgjald félagsmanna.
VII. Önnur mál.
VIII. Fundargerð lesin upp, fundarslit.
Athygli er vakin á því að tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist félögum
SÍ tveimur dögum fyrir aðalfund, samkvæmt lögum félagsins.
Spennandi
námskeið í Grikklandi í lok maí
(Febr. ´07) Evrópusamtök íþróttafréttamanna, UEPS, auglýsa fyrsta
sumarskólann sem haldinn er á vegum samtakanna. Um er að ræða viku námskeið, frá
24. til 31. maí í Olympíu í Grikklandi, í beinu framhaldi af úrslitaleik
Meistaradeildar Evróu sem fram fer í Aþenu 23. maí. Námskeiðið er fyrir
íþróttafréttamenn 45 ára og yngri en eldri eru einnig velkomnir.
Kostnaðurinn, fyrir utan flug, er aðeins 300 Evrur. Innifalið er námskeið í
ensku, fyrirlestrar, skoðunarferðir og ýmislegt fleira.
Hvert aðildarland UEPS hefur rétt að lágmarki tveimur sætum á þessu námskeiði.
Áhugasamir sæki sjálfir um hjá UEPS en allar nánari upplýsingar og skráning er
að finna á heimasíðu samtakanna:
www.ueps-media.com
Óásættanleg
vinnubrögð
(Feb. 07)
Nýlokið er glæsilegu heimsmeistaramóti í handbolta í Þýskalandi.
Íslenskir fjölmiðlar hafa líklega aldrei fjallað með eins miklum glæsibrag um
mótið en allir stærstu fjölmiðlar landsins sendu íþróttafréttamenn á mótið. Hins
vegar reyndist þrautin þyngri fyrir íþróttafréttamenn af dagblöðunum að komast á
sjálfan úrslitaleikinn í Köln því þrátt fyrir að hafa passa á alla leiki var
t.d. íþróttafréttamönnum Morgunblaðsins meinaður aðgangur að leiknum. Þeir fengu
að fara í miðstöð fréttamanna en fengu ekki að sjá leikinn sjálfan. Þetta eru
auðvitað algörlega óásættanleg vinnubrögð og hefur formaður SÍ, sent bréf til
AIPS þar sem þess er óskað að samtökin mótmæli þessum gjörningi þýskra. Bréfið
má sjá hér.
Æsispennandi
keilukeppni
(Febr. '07)
Föstudagskvöldið 26. janúar, strax að leik Dortmund og Bayern München loknum,
fór fram fjölmiðalmót í keilu á nýrri og fullkominni keilubraut í kjallara
Ringhotel Drees í Dortmund. Þrjár sveitir mættu til leiks en þær voru frá
Fréttablaðinu, Stöð 2 og Morgunblaðinu. Var hver sveit skipuð tveimur mönnum og
var keppnisfyrirkomulag einfalt og vann sú sveit umferðina sem felldi flestar
keilur í hverri umferð. Skemmst er frá því að segja að sveit Morgunblaðsins
vann, hafði betur í 11 umferðum. Stöð 2 varð í öðru sæti með 9 vinninga en sveit
Fréttablaðsins rak lestina með 6 vinninga. Sveit Morgunblaðsins sem skipuð var
þeim Ívari Benediktssyni og Víði Sigurðssyni gerði svo gott sem út um leikinn í
fyrri umferð með því að krækja þá í níu vinninga þegar þeir fóru hamförum og
náðu hverri fellunni á fætur annarri eftir að hafa farið rólega af stað. Sveit
Stöðvar 2 sem skipuð var keilulandsliðsmanninum Birni Sigurðssyni og Arnari
Björnssyni sótt mjög í sig verðið í seinni hlutanum en tókst ekki vinna upp í
síðari hlutanum þann mikla mun sem Morgunblaðið hafði náð í fyrri hlutanum.
Þrátt fyrir stífar æfingar daga á undan þá tókst Pjetri Sigurðssyni og Henry
Birgi Gunnarssyni frá Fréttablaðinu ekki að sýna sínar bestu hliðar í keppninni
sem olli a.m.k. öðru keppandandum miklu hugarangri um stund.
Allt var þetta til gamans gert og tókst keppnin
með mikum ágætum auk þess sem hún var kærkomin til þess að brjóta upp langa
vinnudaga manna á meðan á heimsmeistaramótinu í handknattleik stóð.
AIPS auglýsir styrki
(Febr. '07) Alþjóðasamband íþróttafréttamanna (AIPS) auglýsir
styrkveitingar fyrir íþróttafréttamenn sem hafa áhuga á því að afla sér reynslu
og menntunar. Annars vegar er um að ræða styrki til að fara á heimsmeistaramótið
í borðtennis í Zagreb í maí og hins vegar styrk fyrir íþróttafréttamann sem
kemur ekki frá ensku mælandi landi.
Meðfylgjandi er bréfið frá formanni AIPS: meira
Samtök íþróttafréttamanna aðili að ráðstefnunni PLAY THE GAME -
haldin á Íslandi í lok október nk.
(FEB.
'07) Ráðstefnan PLAY THE GAME verður haldin á Íslandi dagana 28.
október til 1. nóvember nk. Þetta er í fimmta sinn sem hún er haldin en sú
fyrsta fór fram 1997. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem hún er haldin utan
Danmerkur. Búist er við um 300 íþróttafréttamönnum og háskólafólki sem sérhæfir
sig í íþróttarannsóknum, til Íslands, alls staðar úr heiminum.
Fyrsta PLAY THE GAME ráðstefnan var haldin að tilstuðlan dönsku
ungmennafélagssamtakanna, DBI, en er nú sjálfstæð eining undir forsvari Danans
Jens Sejer Andersen og er eina óháða ráðstefnan um íþróttir í heiminum. Á
ráðstefnunni verða hvorki fleiri né færri en 40 fyrirlesarar um ýmislegt sem
snýr að íþróttum en rauði þráðurinn í ráðstefnununum fram að þessu hefur verið
að taka fyrir og kryfja ýmis áhugaverð mál í heimi íþróttanna vegar um heiminn,
varpa ljósi á pólitísku hliðina á íþróttum sem er oft á tíðum með ólíkindum,
skoða lyfjamál, spillingamál auk þess sem ýmsir þekktir einstaklingar úr heimi
íþróttanna halda fyrirlestra. Þar má nefna hlaupakonuna Kelli Wihte sem féll á
lyfjaprófi á sínum tíma en hún hélt afar áhugaverðan fyrirlestur á ráðstefnunni
fyrir tveimur árum.
Í tilefni 100 ára afmælis UMFÍ var ákveðið að ráðstefnan færi fram á Íslandi
meira
Áhugaverð umfjöllun
Morgunblaðsins
(Jan.
'07) Áhugaverð umfjöllun er í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins 28. janúar
um konur og íþróttir. Þar er m.a. fjallað um kjör íþróttamanns ársins þar sem
réttilega er bent á að aðeins þrjár konur hafi verið valdar Íþróttamaður ársins.
Í umfjölluninni er m.a. rætt við tvær landsþekktar íþróttakonur og viðhorf
þeirra til kjörsins, þær Ragnheiði Runólfsdóttur og Ásthildi Helgadóttur, en
hvorug þeirra vill kynskipta kjörinu. Yfirskrift greinarinnar er "ÞRJÁR KONUR
Á HÁLFRI ÖLD". Greinin kemur hér:
Hlutur kvenna í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins hefur
verið rýr gegnum tíðina en í ríflega fimmtíu ára sögu kjörsins hafa aðeins þrjár
konur hrósað sigri, Sigríður Sigurðardóttir handknattleikskona (1964),
Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona (1991) og Vala Flosadóttir stangarstökkvari
(2000).
Ólafur Rafnsson segir þetta umhugsunarefni. meira
Íþróttafréttamenn veðja á
Platini
(Jan.
'07) Samkvæmt netkönnun AIPS, Alþjóðasambandi íþróttafréttamanna, veðjar
meirihluta þeirra á að Michel Platini leggi Lennart Johansson að velli í
forsetakjöri UEFA. Johannsson fékk 67.82% atkvæða en Johansson 32.18%.
Íþróttafréttamenn í yfir 40 löndum tóku þátt í kjörinu. Kjörið fer fram næsta
föstudag.
Sænska blaðið Aftonbladet reiknar með mjög spennandi kjöri. Samkvæmt úttekt
blaðsins hafa Platini og Johansson stuðning 22ja landa hvor, 8 lönd eru
óákveðin. Athyglisvert er að KSÍ styður Platini í kjörinu, samkvæmt úttekt
sænska blaðsins. Það gera einnig Danmörk og Færeyjar en Norðmenn styðja
Johansson og að sjálfsögðu Svíar.
Sjá nánar:
http://www.aipsmedia.com/index.php?page=news&cod=731&tp=n
http://www.aftonbladet.se/vss/sport/story/0,2789,982518,00.html
Svo fór að íþróttafréttamenn reyndust sannspáir því Platini lagði Johannsson að
velli í kjörinu. Platini, sem er 51 árs gamall, fékk 27 atkvæði en Johansson,
sem er 77 ára, hlaut 23 atkvæði.
Styrkur frá
Alþjóða Ólympíuhreyfingunni
(Jan. '07) Þær
ánægjulegu fréttir bárust á dögunum að Alþjóða Ólympíuhreyfingin
hefur endanlega staðfest 10 þúsund dollara styrkveitingu til
Samtaka íþróttafréttamanna vegna bókar sem verið er að skrifa um
sögu Íþróttamanns ársins frá upphafi. Hallgrímur Indriðason,
fréttamaður á RÚV og fyrrverandi íþróttafréttamaður, situr þessa
dagana við skriftir en hann byggir bókina að hluta til á mjög
vönduðum útvarpsþáttum sem hann gerði um íþróttamenn ársins
fyrir nokkrum árum. Samtök íþróttafréttamanna gefa út bókina í
samvinnu við Eddu-útgáfu þar sem velgjörðarmaður okkar, Sigurður
Svavarsson, vakir yfir útgáfunni. Stefnt er að útgáfu bókarinnar
næsta haust.
Hvor verður
næsti forseti UEFA?
(Jan.
'07) Svíinn Lennart Johannsson,
núverandi forseti Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA), og Frakkinn
Michel Platini, berjast um forsetaembætti UEFA en kosið verður á
næstunni. Allt stefnir í spennandi kosningar.
Nú stendur yfir könnun á vef Alþjóðasambands íþróttafréttamanna,
aipsmedia.com, þar sem félagsmönnum gefst kostur að velja
á milli Johannsson og Platini. Farið endilega inn á vefinn og
takið þátt en þið þurfið að skrá inn AIPS-númerið ykkar áður en
þið greiðið atkvæði. Kosningu lýkur mánudaginn 22. janúar.
Breytingar hjá
íþróttafréttamönnum
(Jan. '07) Nokkrar
breytingar hafa orðið á högum íþróttafréttamanna að undanförnu. Eftir að
útvarpsstöðin XFM var lögð niður færði Valtýr Björn Valtýsson sig yfir á á X-ið
977 sem er í eigu 365. Hann verður áfram með þáttinn sinn, Mín skoðun, á milli
kl. 12-14, mánudaga til föstudaga. Þá hafa þeir Óskar Ófeigur Jónsson og Dagur
Sveinn Dagbjartsson haft vistaskipti. Óskar Ófeigur fór frá DV yfir á
Fréttablaðið en Dagur Sveinn í hina áttina. Þá er Benedikt Bóas Hinriksson
tekinn til starfa sem íþróttafréttamaður á DV sem verður að dagblað að nýju á
næstunni. Þess má einnig geta að Hans Steinar Bjarnason er í fullu starfi þessa
dagana sem íþróttafréttamaður hjá Stöð 2 og Sýn.
Tveir nýir
félagsmenn
(Jan. '07) Tveir nýir félagsmenn hafa bæst í
Samtök íþróttafréttamanna og uppfylla þar með öll skilyrði fyrir
inngöngu. Lovísa Árnadóttir og Benedikt Rafn Rafnsson gengu í
félagið á síðasta fundi. Bæði starfa þau sem íþróttafréttamenn á
RÚV í fullu starfi. Þar með eru félagsmenn SÍ orðnir 23 en
Lovísa er eina konan í félaginu. Nánar
hér
FRÉTTIR ÁRSINS 2006
|