Magnað heimsþing AIPS í Pekíng

(Júní '08) AIPS, Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, héldu sitt árlega þing, að þessu sinni í Pekíng, höfuðborg Kína, 21. - 24. maí sl. Formaður SÍ, Þorsteinn Gunnarsson, og gjaldkeri samtakanna, Jón Kristján Sigurðsson, sóttu þingið. Til Pekíng komu fulltrúar frá u.þ.b. 100 löndum en þetta var 71. heimsþing AIPS.

Að vanda voru ýmis hagsmunamál íþróttafréttamanna um alla heim rædd. En þingið bar þess merki að Ólympíuleikar eru fram undan í Pekíng. Forystumenn kínversku- og Alþjóða Ólympíuhreyfingarinnar ávörpuðu þingið en í þeirra máli kom fram að lykillinn að vel heppnuðum Ólympíuleikum sé góð þjónusta við fjölmiðla og starfsfólk þeirra þannig að leikarnir skili sér heim í stofu heimsbyggðarinnar á sem áhrifamestan hátt.

Fram kom í máli formanns kínversku Ólympíunefndarinnar að það sé ekkert einsdæmi að land eins og Kína nýti sér Ólympíuleika í einhvers konar áróðursskyni. Hvert einasta land sem haldi slíka leika nota þá til þess að auglýsa ágæti sitt og markaðssetja sem ferðamannaland í framtíðinni.

Farið var í skoðunarferð um Ólympíuþorpið sem risið er og er óhætt að segja að það sé hið stórglæsilegasta. Aðstaða fjölmiðlamanna er til fyrirmyndar en búist er við um 21.600 íþróttafréttamönnum til Peking í tengslum við leikana, fyrir utan tæknifólk! Kínverjar fullyrða að í Ólympíuþorpinu sé stærsta og tæknilega fullkomnasta aðstaða Ólympíusögunnar á hvorki meira né minna en 60 þúsund fermetra svæði, takk fyrir! Á öllum keppnisstöðum er að sjálfsögðu þráðlaust net og sjónvarpsmyndir eru í háskerpu (HD). Um 7000 herbergi eru til ráðstöfuna fyrir íþróttafréttamenn og ljósmyndara í tveimur fjölmiðlaþorpum. Íþróttafréttamenn munu gista á 42 fjölmiðlahótelum.



Farin var skoðunarferð í Fuglshreiðrið, aðalleikvang Ólympíuleikanna. Þetta er magnað mannvirki, arkitektúrinn nýstárlegur og öll astaða til fyrirmyndar. Leikvangurinn tekur 91.000 manns í sæti. Athygli vekur að svokallað Mixed Zone fyrir fjölmiðla er uppi í miðri stúkunni inni á leikvanginum! Æfingamót fór fram á vellinum þegar við vorum þar og gekk eins og í sögu.

Móttökur Kínverja voru höfðinglegar. Meðal annars var farið á sjálfan Kínamúrinn, sem er eitt af sjö undrum veraldar. Upplifunin var stórkostleg enda lengi verið draumur undirritaðs að komast þangað. Kínamúrinn er 6.700 km langur og talið er að á bilinu 2-3 milljónir Kínverja hafi látist við byggingu múrsins á sínum tíma.
Múrinn er að meðaltali 7-8 metra hár og fer mest í 10 metra. Hann er 6 m breiður og hægt er að ganga ofan á múrnum og eru 1 m háir kantar ofan á múrnum svo hestar og menn falli ekki af honum. Tröppur liggja upp á múrinn og á 200-300 metra fresti kemur svo upphækkaður stallur sem gefur góða yfirsýn og þar uppi kemur svo reglulega ljósviti eða skjól.

Það tók á að fara upp Kínamúrinn í 40 stiga hita en var sannarlega þess virði.

 


AIPS samtökum gáfu kínverska Rauða krossinum 20 þúsund dollara að gjöf til uppbyggingar á þeim svæðum sem verst urðu úti í í jarðskjálftunum í Kína í síðasta mánuði.

Þetta AIPS þing í Kína verður öllum ógleymanlegt sem þangað komu enda gaman að kynnast nýrri menningu og landi. Móttökur Kínverja voru stórkostlegar og vonandi að mengunin verði minni í Pekíng þegar ÓL fara fram.  Fulltrúar Íslands á AIPS þinginu voru svo lánsamir að geta heilsað sérstaklega upp á fulltrúa kínversku Ólympíunefndarinnar og Samtök kínverskra íþróttafréttamanna ásamt formanni AIPS, Giovanni Merlo, undir lok þingsins. Við færðum þeim bókagjafir frá Samtökum íþróttafréttamanna á Ísland. Kínverjarnir spurðu okkur spenntir hvenær yrði heimsþing AIPS á Íslandi. Svarið sem við gáfum þeim var að slíkt yrði gert um leið og samtökin ynnu í Lottóinu!

Næsta þing fer fram í Mílanó á Ítalíu en þá er kosningaár og má búast við töluverðu átakaþingi. Takk fyrir okkur.

ÞG og JKS