PLAY THE GAME HEFST Á
SUNNUDAGINN
(Sept. '07)
Ráðstefnan Play the game hefst á sunnudaginn, 28. október, og því fer hver að
verða síðastu að skrá sig.
Ég vil endilega hvetja ykkur til að skoða það sem er á boðstólum. Hér er
samantekt á því:
http://www.playthegame.org/upload/documents/playthegameconferenceprogramme.pdf
Þarna eru margir áhugaverðir fyrirlesarar og svo eru umræður og fyrirspurnir
eftir hvern fyrirlestur ásamt það sem nefnist Workshop.
Dæmi: Á sunnudagskvöldið er áhugavert málþing um ENSKA BOLTANN, sem ber
yfirskriftina: AÐEINS FYRIR MILLJARÐAMÆRINGA? Á meðal fyrirlesara eru Shaka
Hislop, fyrrverandi markvörður West Ham o.fl. liða.
Á mánudagsmorgun er fjalla um stórviðburði í íþróttum eins og EM 08. Eftir
hádegi er meira um fótbolta eins og t.d. markaðssetningu. Um kvöldið mætir
forseti WADA sem ætti að vera ansi áhugavert.
Þriðjudagurinn fer mikið í lyfjamál. Miðvikudagurinn er áhugaverður, þá mætir
hinn kunni enski blaðamaður Andrew Jennings sem fjallar um spillingmál hjá FIFA,
James Oliver frá BBC Panorama og Shaka Hislop. Auk þessa er ýmislegt annað mjög
áhugavert sem gaman er að fylgjast með.
Athugið sérstakleg tilboð fyrir íslenska fréttamenn, þið rukkið svo
Blaðamannafélag Íslands.
Kveðja
Þorsteinn Gunnarsson
-------------------------
Tilboðsverð fyrir
Íslendinga
Congress Reykjavík hefur haft veg og vanda að undirbúningi ráðstefnunnar í
samvinnu við forsvarsmenn Play the Game og UMFÍ. Langflestir þátttakendur á
ráðstefnuna koma erlendis frá og kaupa þá ákveðinn pakka sem inniheldur
þátttökugjald og gistingu. Nú hefur verið ákveðið og koma til móts við
Íslendinga sem hafa áhuga á að sækja ráðstefnuna.
Verð sem í boði eru gilda fyrir þá daga sem þátttakendur sitja ráðstefnuna:
Sunnudagur 28. október, opnunardagur, 14.00-22.00 7.000 kr.
Mánudagur 29. október 8.30-22.00 10.000 kr.
Þriðjudagur 30. október 8.00-11.00 3.000 kr.
Miðvikudaur 31. október 8.30-22.00 10.000 kr.
Fimmtudagur 1. nóvember 8.30-18.00 7.000 kr
Lokakvöldverður á Grand hotel Fimmtudaginn 1. nóv kl. 20:00 kr. 5.000,-
Vinsamlegast sendið skráningu á tobba@congress.is .
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:
Nafn þátttakanda
Fyrirtæki/stofnun
Netfang
Hvaða daga viðkomandi óskar að sækja ráðstefnuna og hvort lokakvöldverður eigi
að vera í skráningu
Upplýsingar um hvert senda eigi reikning eða greiðslukortaupplýsingar
Upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar eru á www.playthegame.org
Þetta er í fimmta sinn sem Play The Game er haldin en sú fyrsta fór fram 1997.
Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem hún er haldin utan Danmerkur. Búist er
við um 300 íþróttafréttamönnum og háskólafólki sem sérhæfir sig í
íþróttarannsóknum, til Íslands, alls staðar úr heiminum.
Fyrsta PLAY THE GAME ráðstefnan var haldin að tilstuðlan dönsku
ungmennafélagssamtakanna, DGI, en er nú sjálfstæð eining undir forsvari Danans
Jens Sejer Andersen og er eina óháða ráðstefnan um íþróttir í heiminum.
Á ráðstefnunni verða um 80 fyrirlesarar um ýmislegt sem snýr að íþróttum en
rauði þráðurinn í ráðstefnununum fram að þessu hefur verið að taka fyrir og
kryfja ýmis áhugaverð mál í heimi íþróttanna vegar um heiminn, varpa ljósi á
pólitísku hliðina á íþróttum sem er oft á tíðum með ólíkindum, skoða lyfjamál,
spillingamál auk þess sem ýmsir þekktir einstaklingar úr heimi íþróttanna halda
fyrirlestra.