Tilboðsverð fyrir Íslendinga sem taka þátt í Play the Game

(Sept. '07) Eins og áður hefur komið fram verður Play the Game
ráðstefnan haldin á Grand Hótel í Reykjavík dagana 28. október til 1.
nóvember.Ráðstefnan er einn liður í 100 ára afmæli UMFÍ. Congress Reykjavík
hefur haft veg og vanda að undirbúningi ráðstefnunnar í samvinnu við
forsvarsmenn Play the Game og UMFÍ en Samtök íþróttafréttamanna koma einnig að
undirbúningi hennar.
Langflestir þátttakendur á ráðstefnuna koma erlendis frá og kaupa þá ákveðinn
pakka sem inniheldur þátttökugjald og gistingu. Nú hefur verið ákveðið og koma
til móts við Íslendinga sem hafa áhuga á að sækja ráðstefnuna. Athygli er vakin
á því að Blaðannafélag Íslands greiðir pakkann fyrir íslenska þátttakendur.
Verð sem í boði eru gilda fyrir þá daga sem þátttakendur sitja ráðstefnuna:
Sunnudagur 28. október, opnunardagur, 14.00-22.00 7.000 kr.
Mánudagur 29. október 8.30-22.00 10.000 kr.
Þriðjudagur 30. október 8.00-11.00 3.000 kr.
Miðvikudaur 31. október 8.30-22.00 10.000 kr.
Fimmtudagur 1. nóvember 8.30-18.00 7.000 kr
Lokakvöldverður á Grand hotel Fimmtudaginn 1. nóv kl. 20:00 kr. 5.000,-
Vinsamlegast sendið skráningu á tobba@congress.is . Eftirfarandi upplýsingar
þurfa að koma fram:
Nafn þátttakanda
Fyrirtæki/stofnun
Netfang
Hvaða daga viðkomandi óskar að sækja ráðstefnuna og hvort lokakvöldverður eigi
að vera í skráningu
Upplýsingar um hvert senda eigi reikning eða greiðslukortaupplýsingar
Upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar eru á www.playthegame.org
Þetta er í fimmta sinn sem Play The Game er haldin en sú fyrsta fór fram 1997.
Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem hún er haldin utan Danmerkur. Búist er
við um 300 íþróttafréttamönnum og háskólafólki sem sérhæfir sig í
íþróttarannsóknum, til Íslands, alls staðar úr heiminum.
Fyrsta PLAY THE GAME ráðstefnan var haldin að tilstuðlan dönsku
ungmennafélagssamtakanna, DGI, en er nú sjálfstæð eining undir forsvari Danans
Jens Sejer Andersen og er eina óháða ráðstefnan um íþróttir í heiminum.
Á ráðstefnunni verða um 80 fyrirlesarar um ýmislegt sem snýr að íþróttum en
rauði þráðurinn í ráðstefnununum fram að þessu hefur verið að taka fyrir og
kryfja ýmis áhugaverð mál í heimi íþróttanna vegar um heiminn, varpa ljósi á
pólitísku hliðina á íþróttum sem er oft á tíðum með ólíkindum, skoða lyfjamál,
spillingamál auk þess sem ýmsir þekktir einstaklingar úr heimi íþróttanna halda
fyrirlestra.